Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Íbúðakjarninn Kleppsvegi óskar eftir stuðningsfulltrúa

Íbúðakjarninn Kleppsvegi óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 80% starfshlutfall. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf sem hentar vel einstakling sem nýtur þess að vinna með fólki og er tilbúinn að leggja sitt af mörkum í teymisvinnu. Vinnutími er blandaður og felur í sér morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir.

Á Kleppsvegi er lögð áhersla á jákvæð og uppbyggileg samskipti. Þjónustan miðar að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að búa sjálfstætt og lifa sjálfstæðu lífi með það að markmiði að aðstoða þá í að skapa og þróa ný tækifæri í sínu lífi. Stefnan er að veita ávallt framúrskarandi gæðaþjónustu til íbúana. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsagnar.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.
  • Starfsmaður vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra.
  • Markmiðið er að styðja einstaklinga við að búa á eigin heimili, stunda vinnutengda stoðþjónustu, auka samfélagsþátttöku, sækja þjónustu og njóta menningar og félagslífs.
  • Leitast er við að koma til móts við þarfir hvers og eins og laga þjónustuna að breytilegum þörfum og aðstæðum viðkomandi á hverjum tíma. Virða ber sjálfræði einstaklinga og hafa velferð þeirra að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg þá sér í lagi með eihverfum einstaklingum.
  • Bílpróf.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 eða hærra samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Betri vinnutími.
  • Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir.
  • Sund- og menningarkort.
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Kleppsvegur 90, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar