Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði í heimahjúkrun

Heimahjúkrun Sléttuvegi leitar að öflugum sjúkraliða til starfa við heimahjúkrun. Við Sléttuveg 3,7,9 starfar samþætt teymi heimastuðnings og heimahjúkrunar.

Norðurmiðstöð leitar að öflugum sjúkraliðum til starfa í heimahjúkrun við Sléttuveg.

Um er að ræða tímabundið starf í vaktavinnu í 80-100 % starfi á sólarhringsstað með möguleika um framhald.

Jákvæðni og liðsheild einkennir vinnustaðinn. Lögð er áhersla á þverfaglegt starf í samráði við þjónustuþega sem hafa fjölbreyttar hjúkrunarþarfir.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sjúkraliðafélagi Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfað er eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði heimahjúkrunar.
  • Hjúkrunarþjónusta í heimahúsi í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar og þjónustuþega
  • Taka virkan þátt í starfsemi teymis
  • Sinna sérhæfðri hjúkrunarmeðferð í samráði við teymisstjóra
  • Taka þátt í eftirfylgd og mati á hjúkrunaráætlunum í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi 
  • Starfsreynsla sem sjúkraliði í 3-5 ár er æskileg
  • Reynsla af teymisvinnu og vinna með hjúkrunaráætlun er kostur
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Íslenska, gott málfar og góður frágangur á texta ( B1-B2- skv. evrópska tungumálarammanum)
  • Þekking á sjúkraskrákerfinu SÖGU æskileg
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks sem og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • 36 stunda vinnuvika
Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur17. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sléttuvegur 7, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SjúkraliðiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar