
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Sumarstarf í stuðnings-og stoðþjónustu
Akraneskaupstaður auglýsir störf í sumarafleysingu í stuðnings-og stoðþjónustu. Um er að ræða fjölbreytt afleysingastörf yfir sumartímann í þjónustu við eldra fólk og fatlað fólk. Þjónustan felur í sér aðstoð inn á heimilum sem og utan þeirra. Verkefnin eru fjölbreytt, þar á meðal aðstoð við búðarferðir, innlit, samveru í lengri og styttri tíma og fleira. Um er að ræða dag-og vaktavinnu eftir því sem við á.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
- Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
- Félagslegur stuðningur við þjónustuþega.
- Akstur með þjónustuþega.
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskukunnátta er skilyrði.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og lausnamiðuð viðhorf.
- Ökuréttindi og aðgengi að bifreið.
- Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Að virðing sé höfð að leiðarljósi í samskiptum við þjónustuþega, aðstandendur og samstarfsfélaga.
- Stundvísi, samviskusemi og jákvætt viðhorf.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Akraneskaupstaðar.
Auglýsing birt11. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiSveigjanleikiUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Komdu að vinna í Árskógum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Verkefnastjóri á skrifstofu málefna fatlaðs fólks
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

PA óskast í fullt starf/PA wanted for full-time position
Aðstoð óskast

Leita að NPA aðstoðarfólki / NPA assistants wanted
NPA miðstöðin

Sumarstörf Velferðarsvið: Háskólamenntaðir starfsmenn
Akureyri

Starfsmaður í móttöku 80-100% starf
Læknastofur Reykjavíkur

Teymisstjóri í dagdvölinni Árblik og dagþjálfuninni Vinaminni
Árblik

Ævintýragjarnt aðstoðarfólk óskast í hlutastarf
NPA miðstöðin

Íþróttafræðingur
Endurhæfing - þekkingarsetur

Sumarstarf á heimili fatlaðs fólks
Sumarstörf - Kópavogsbær

Óska eftir aðstoðarkonu í Vesturbæinn
NPA miðstöðin

Spennandi sumarstarf í búsetuþjónustu
Borgarbyggð