

Lögfræðingur - loftslag og loftgæði
Umhverfis- og orkustofnun annast framkvæmd viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir fyrir Íslands hönd. Flugrekendum, rekstraraðilum í staðbundnum iðnaði og skipafélögum er skylt að afla losunarheimilda vegna losunar gróðurhúsalofttegunda sem fellur undir gildissvið viðskiptakerfisins. Einnig hefur stofnunin umsjón með losunarbókhaldi Íslands fyrir losun gróðurhúsalofttegunda og loftmengunarefna og tryggir að bókhaldið standist evrópskar og alþjóðlegar kröfur.
Laust er starf lögfræðings í loftslags- og loftgæðamálum. Um er að ræða afleysingu til eins árs. Lögfræðingurinn mun starfa í öflugum teymum á sviði loftslagsmála þar sem áhersla er lögð á þverfaglega samvinnu. Starfssvið lögfræðingsins felst í vinnu með sérfræðingum að greiningu og úrlausn lögfræðilegra og stjórnsýslulegra álitamála í loftslags- og loftgæðamálum. Í boði er krefjandi starf í frjóu umhverfi sérfræðinga þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, framsýni og virðingu. Mikil samskipti eru við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir. Lögfræðingurinn mun taka þátt í samstarfi við ráðuneyti, aðrar ríkisstofnanir, hagsmunaaðila, sveitarfélög, fyrirtæki og samtök þeirra.
- Greining og úrlausn lögfræðilegra og stjórnsýslulegra álitamála.
- Eftirlit með framkvæmd viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir, beiting þvingunarúrræða og ritun stjórnvaldsákvarðana eftir því sem við á.
- Greining á löggjöf Evrópusambandsins í loftslags- og loftgæðamálum
- Undirbúningur reglugerða í samvinnu við sérfræðinga stofnunarinnar og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
- Umsagnir um lagafrumvörp og önnur mál í samráðsgátt stjórnvalda eða önnur þingmál og umsagnir í kæru- og dómsmálum. Einnig gerð tillagna að breytingum á lögum og reglugerðum.
- Evrópusamstarf hvað varðar viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og loftgæðamál. Önnur tilfallandi þátttaka í starfshópum og nefndum á málefnasviði lögfræðings
- Fræðsla og ráðgjöf um lögfræðileg efni.
- Menntun á sviði lögfræði með áherslu á umhverfismál. Meistarapróf eða fullnaðarpróf í lögfræði er skilyrði.
- Þekking á umhverfis- og loftslagsmálum, þ. á m. viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir er kostur.
- Þekking og/eða reynsla af EES-rétti og reglum EES-samningsins um umhverfisvernd er kostu
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Stafræn verkefni – þekking og geta til að sýna frumkvæði
- Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
- Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskiptum
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Haldbær þekking á einu Norðurlandamáli er kostur
Íslenska
Enska







