

Löglærður fulltrúi
Starf löglærðs fulltrúa við sýslumannsembættið á Norðurlandi vestra er laust til umsóknar. Starfsstöð er á Blönduósi og starfshlutfall 100%.
Um er að ræða verkefni á sviði fullnustu og innheimtu, auk annarra tilfallandi verkefna á starfssviði embættisins. Starfið felst í faglegri ábyrgð á tilgreindum sviðum, skipulagningu og aðlögun verkefna, þátttöku í gerð verkferla, töku stjórnvaldsmála, leiðsögn til starfsmanna, o.fl. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf innan stofnunar í stöðugri þróun. Starfið krefst ríklegra samstarfshæfni og getið til að sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Um er að ræða ótímabundna ráðningu með 6 mánaða reynslutíma. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. apríl nk eða sem næst því.
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði og önnur skilyrði 2. mgr. 3. gr. sbr. 2. ml. 2. mgr. 5. gr. l. nr. 50/2014
- Geta til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi er skilyrði
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og samvinnufærni er skilyrði
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi er kostur
- Þekking á verkefnum sýslumanna og opinberri stjórnsýslu er kostur
- Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum
- Mjög góð tölvukunnátta
- Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
- Þekking á einu Norðurlandamáli er kostur
- Almenn ökuréttindi
Við leitum að áreiðanlegum starfsmanni til að leiða og þróa mikilvæga málaflokka í starfsemi embættisins. Horft verður til þess að umsækjandi falli sem best að þörfum starfsstöðvarinnar og embættisins í heild.
Enska
Íslenska







