

Verkfræðingur í Gæðasetri
Viltu taka þátt í að tryggja að tæknilausnir sem breyta lífi fólks standist hæstu gæðakröfur?
Í Gæðasetri Össurar færðu tækifæri til að vinna að nýjustu lækningatækjum, greina flókin gögn og hafa bein áhrif á vörur sem koma til með að bæta líf þúsunda notenda um heim allan. Við leitum að lausnamiðuðum og framsæknum verkfræðingi sem hefur áhuga á tækni, greiningum og samvinnu við fjölbreytt teymi innan fyrirtækisins.
-
Greining á frávikum, kvörtunum og gögnum til að styðja við stöðugar umbætur
-
Kerfisbundin rýni á sögulegum gögnum og þróun á áhættumötum tengdum vörum
-
Náin samvinna við þróun, framleiðslu, þjónustu og sérfræðinga víðs vegar innan Össurar
-
Skýrslugerð, miðlun niðurstaðna og framsetning á lykilgögnum til ákvarðanatöku
-
Þátttaka í verkfræðilegum verkefnum sem stuðla að auknu öryggi og gæðum lækningatækja
-
Stjórn og eftirfylgni með kerfum og ferlum sem tryggja gæði
-
Háskólapróf (BSc) í verkfræði, tæknifræði, véla- eða rafmagnstengdri tækni
-
Reynsla af gagnagreiningu (Excel, Pivot Tables, PowerBI, Python eða sambærilegt)
-
Þekking á vélbúnaði eða rafbúnaði er kostur
-
Þekking á gæðakröfum fyrir lækningatæki eða stöðlum (t.d. ISO 13485) er kostur
-
Færni í skýrum samskiptum og framsetningu gagna
-
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
-
Góð enskukunnátta
-
Líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur
-
Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
-
Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
-
Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf
-
Árlegur sjálfboðaliðadagur
- Starfsþróun
-
Öflugt félagslíf
Íslenska
Enska










