
Sýn
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Rekstrarstjóri þjónustu
Rekstrarstjóri þjónustu gegnir lykilhlutverki fyrir þjónustuna og ber ábyrgð á að hún sé í samræmi við þjónustuloforð fyrirtækisins og þarfir viðskiptavina. Hlutverkið spannar þátttöku í stefnumótun, rekstur, leiðir umbætur og samvinnu milli eininga til að tryggja sem bestu þjónustuupplifun og árangur fyrir bæði viðskiptavini og félagið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skilgreina kerfislegar þarfir þjónustunnar út frá þjónustuloforði og raunverulegum þörfum viðskiptavina.
- Tryggja að þjónustan styðji við stefnu og gildi félagsins.
- Gæta að kerfislegum hagsmunum þjónustunnar í ákvörðunum og forgangsröðun.
- Skilgreina, viðhalda og þróa þjónustuferla og verklag miðað við þarfir og upplifun viðskiptavina.
- Tryggja að verkferlar séu virtir og umbótaverkefni keyrð áfram.
- Setja fram mælanleg markmið fyrir þjónustusviðið í samræmi við gildi félagsins.
- Mæla og greina þjónustuánægju, þjónustustig, frammistöðu og skilvirkni.
- Skila reglulegum árangursskýrslum ásamt frávikum og leggja til aðgerðir til úrbóta.
- Hafa frumkvæði að tillögum um breytingar á áherslum eða nýjum mælikvörðum þegar þörf krefur.
- Taka virkan þátt í stefnumótun og þróun nýrra lausna í samstarfi við vörustýringu og aðra lykilaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi og færni á tækni og nýjungum
- Greiningarhæfni/talnalæsi og nákvæmni
- Metnaður og frumkvæði
- Góð ensku- og tölvukunnátta er nauðsynleg
- Háskólapróf eða önnur sambærileg menntun æskileg
Fríðindi í starfi
Hvað höfum við að bjóða þér?
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift
- Streymisveitu Sýnar og Viaplay
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri innri og ytri þjónustu
Kópavogsbær

Verkefnastjóri gæðamála
Orkubú Vestfjarða ohf

Verkefnastjóri
Arctic Hydro

Rekstrarstjóri Nova Appsins
Nova

FORSTÖÐUMAÐUR
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs

Verkefnastjóri í happdrættis- og markaðsdeild
Happdrætti Háskóla Íslands

Verkefnastjóri stefnu
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Verkefnastjóri á markaðssamskiptasviði
Íslandsstofa

Tækni- og þjónustustjóri
Advania

Skipulagsfulltrúi
Sveitarfélagið Hornafjörður

Viðhaldstæknimaður fyrir vélmenni / Robot Specialist and Facility Maintenance Manager
NEWREST ICELAND ehf.

Verkstjóri Vinnuskóla Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður