

Verkstjóri Vinnuskóla Akraneskaupstaðar
Auglýst er eftir verkstjóra í Vinnuskólann á Akranesi fyrir sumarið 2026.
Verkstjóri sér um daglegan rekstur Vinnuskólans og er tengiliður milli flokkstjóra.
Verkstjóri vinnur einnig náið með Garðyrkjustjóra.
Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu byggðalagsins.
Markmið vinnuskólans er að gefa unglingum kost á sumarstörfum í umhverfi sem einkennist af fræðslu, kennslu, þjálfun og tómstundum. Lögð er áhersla á samskiptareglur, vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, samstarfsfólki og bæjarbúum. Einnig eru grundvallaratriði í vinnubrögðum kynnt og notkun verkfæra.
- Umsjón með daglegum rekstri Vinnuskólans.
- Koma vinnu og verkefnum af stað og hafa yfirlit yfir verkefnastöðu.
- Halda utan um vinnutíma og skrár.
- Vera virkur tengiliður og upplýsingafulltrúi fyrir starfsemi Vinnuskólans.
- Efla liðsheild og vinnuvirðingu meðal starfsmanna Vinnuskólans.
- Umsækjandi þarf að vera 24 ára eða eldri.
- Reynsla af störfum með unglingum er kostur.
- Gott er að hafa mikla samskiptahæfni og skipulagsfærni.
- Umsækjandi þarf að vera góð fyrirmynd og samviskusamur.
Íslenska










