Nova
Nova
Nova

Rekstrarstjóri Nova Appsins

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem brennur fyrir upplifun viðskiptavina til að leiða rekstur Nova appsins. Rekstrarstjóri Nova appsins gegnir lykilhlutverki í að tryggja að appið sé lifandi og í takt við markaðsáherslur Nova að hverju sinni.

Sem rekstrarstjóri Nova appsins verður þú helsti tengiliður við samstarfsaðila Nova, átt í virku samtali við þróunar- og vöruþróunarteymi, og tryggir að fríðindum og upplifun í appinu fari sífellt fram. Þú ert rödd viðskiptavinarins innan Nova þegar kemur að fríðindum, virkni og upplifun innan appsins. Jafnframt leiðir þú rekstur vinatóna Nova, sem eru órjúfanlegur hluti af Nova appinu, og tryggir að þar sé að finna nýjustu og skemmtilegustu tónlistina fyrir viðskiptavini Nova.

Rekstrarstjóri Nova appsins er hluti af markaðsteymi Nova og styður því einnig við fjölbreytt verkefni markaðsdeildarinnar eftir þörfum.

Um er að ræða tímabundna stöðu til 12 mánaða með möguleika á framhaldi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Halda utan um rekstur Nova appsins og tryggja að efni, ásýnd og upplifun séu alltaf fyrsta flokks.
  • Bera ábyrgð á notkun, virkni og vexti Nova appsins, með það að markmiði að fjölga virkum notendum og auka þátttöku og ánægju innan appsins.
  • Tryggja stöðugan straum spennandi nýrra fríðinda innan FyrirÞig (2F1, FríttStöff, Klipp, FyrstiSéns) og vinna markvisst að framþróun þeirra.
  • Vinna náið með þróunar- og vöruþróunarteymi Nova í mótun og umbótum á virkni og upplifun í appinu.
  • Vera rödd viðskiptavinarins innan Nova og koma endurgjöf og þarfagreiningu skýrt inn í þróunarferlið.
  • Halda utan um samstarf, samskipti og samningagerð við núverandi og nýja samstarfsaðila sem tengjast fríðindum og upplifun í appinu.
  • Leiða rekstur Vinatóna Nova og halda utan um samskipti við útgáfufélög, rétthafa og tónlistarfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem hefur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Góðan skilning á fríðindakerfum og þarfagreiningu viðskiptavina.
  • Brennandi áhuga á upplifun viðskiptavina og nýsköpun á því sviði.
  • Framúrskarandi samskiptafærni og reynslu af samstarfi við ólíka hagaðila.
  • Getu til að vinna sjálfstætt, skipulega og í teymi.
Auglýsing birt21. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar