

Ert þú fjölhæf markaðsmanneskja?
Háskólinn í Reykjavík óskar eftir öflugri markaðsmanneskju í samheldið teymi á samskiptasviði. Um er að ræða tímabundna stöðu í 12 mánuði (með möguleika á framlengingu). Viðkomandi mun m.a. sinna efnisgerð (e. content creation) fyrir samfélagsmiðla og vef HR, uppsetningu herferða, gerð markaðsefnis í samstarfi við viðeigandi aðila og akademískar deildir, taka þátt í framhaldsskólakynningum, halda utan um viðburði og taka þátt í almennu markaðs- og kynningarstarfi HR.
Helstu verkefni
- Umsjón með efnissköpun, birtingum og herferðum á samfélagsmiðlum
- Þátttaka í að móta markaðsherferðir, markhópa og miðlunarleiðir
- Markaðssetning á viðburðum í nafni HR
- Framhaldsskólakynningar
- Textaskrif í tengslum við markaðs- og kynningarefni
- Samskipti við innri og ytri hagaðila
- Umsjón með viðburðum og kynningum í nafni HR
- Umsjón með markaðsefni á vef HR og uppfærsla á efni
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stafrænni markaðssetningu og notkun Meta Ads Manager
- Þekking á Google Ads er kostur
- Reynsla af efnissköpun fyrir Instagram Reels og TikTok
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna vel í hópi
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Umsóknir berist rafrænt í gegnum umsóknarvef Háskólans í Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild Háskólans í Reykjavík, [email protected], og Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs, [email protected].
Íslenska
Enska
















