Íslensk hollusta ehf.
Íslensk hollusta ehf.
Íslensk hollusta ehf.

Öflugur sölumaður óskast

Við leitum að drífandi sölumanni til að fylgja eftir breiðu vöruúrvali félagsins; allt frá villtum íslenskum jurtum, salti og þara yfir í gæða drykkjarvörur OgNatura og Foss Distillery.

Starfið er fjölbreytt og krefst frumkvæðis og sjálfstæðis.

Við bjóðum: Lifandi starf í rótgrónu fjölskyldufyrirtæki þar sem tækifæri eru til að hafa áhrif á vöxt og viðgang nýrra og spennandi vörumerkja.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sölumennska: Umsjón með núverandi viðskiptavinum (verslanir/veitingastaðir) og öflun nýrra.

  • Rekstur og dreifing: Móttaka og afgreiðsla pantana, pökkun og útkeyrsla á vörum tilfallandi.

  • Markaðsmál: Umsjón með samfélagsmiðlum, þátttaka í mótun sölustefnu og vöruþróun.

  • Kynningar: Þátttaka og umsjón með viðburðum og kynningarstarfi

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Ríkur söludrifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Reynsla af sölumennsku er kostur.

  • Ökuréttindi.

  • Góð tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum.

  • Gott vald á ensku og íslensku.

Auglýsing birt15. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Laun (á mánuði)500.000 - 650.000 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurhella 8, 221 Hafnarfjörður
Vesturvör 30B, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Sölumennska
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar