Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Háskólakennari eða lektor á vélasviði

Háskólinn í Reykjavík leitar að háskólakennara eða lektor á vélasvið tæknifræðideildar.

Leitað er að sérfræðingi á sviðum á vélahönnunar, varmafræði, varmaflutningsfræði, straumfræði, stýritækni og/eða annarra tengdra sviða. Starfið er full akademísk staða við kennslu í orku- og véltæknifræði og í véliðnfræði.

STARFSSVIÐ:

  • Kennsla í völdum námskeiðum í orku- og véltæknifræði, og í véliðnfræði.
  • Hagnýtar rannsóknir og umsjón verkefna sem unnin eru með nemendum og í tengslum við atvinnulíf.
  • Þátttaka í þróun og starfi tæknifræðideildar.
  • Þátttaka í innra starfi Háskólans í Reykjavík.

HÆFNISKRÖFUR:

Umsækjandi skal:

  • hafa sterka fræðilega hæfni og grunnmenntun í tæknifræði, verkfræði eða hagnýtri eðlisfræði;
  • hafa reynslu af kennslu og/eða víðtæka reynslu af hagnýtingu tækni úr atvinnulífi;
  • vera skipulagður, nákvæmur og samviskusamur;
  • vera jákvæður og hafa mikla félagslega færni;
  • eiga auðvelt með að tjá sig í máli og riti, bæði á íslensku og ensku;
  • búa yfir frumkvæði og eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt;
  • brenna fyrir að vinna með nemendum að fræðilegum viðfangsefnum og hagnýtum verkefnum.

Meistaragráða eða doktorsgráða er kostur, sem og reynsla af kennslu á háskólastigi. Staða Lektors í boði fyrir umsækjendur með doktorspróf sem vilja vinna að rannsóknum með kennslu.

Viðkomandi vinnur þétt með fagstjóra vélasviðs, öðrum akademískum starfsmönnum deildarinar og verkefnastjórum á skrifstofu. Þá tekur háskólakennarinn virkan þátt innra í starfi deildarinnar.

Boðið er upp á góða aðstöðu, sjálfstæði í vinnubrögðum og sveigjanleika í starfi.

Tæknifræðideild er ein stærsta deild skólans með um 650 nemendur, 13 akademísk stöðugildi og 4 starfsmenn á skrifstofu og á rannsóknarstofum. Deildin heldur utan um nám í iðnfræði (diplóma), tæknifræði (BSc) og byggingafræði (BSc), og sérhæft örnám fyrir atvinnulífið. Um 150 nemendur útskrifast úr tæknifræðideild árlega.

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Fyrir frekari upplýsingar er áhugasömum boðið að hafa samband við Ásgeir Ásgeirsson, forseta tæknifræðideildar ([email protected]), eða mannauðsdeild HR ([email protected]).

Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.FræðigreinarPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar