
EFLA hf
EFLA er leiðandi þekkingarfyrirtæki sem veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði og tækni.
Starfsfólk samstæðunnar er um 600 talsins á Íslandi og erlendis. EFLA er með svæðisskrifstofur víðsvegar um landið og dótturfélög erlendis.
EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem um fjórðungur starfsfólks starfar. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.
Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.
EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri

Verkefnastjóri í viðhaldsráðgjöf
EFLA leitar að metnaðarfullum og áhugasömum verkefnastjóra í viðhaldsráðgjöf. Um er að ræða starf á sviði bygginga í fagteymi um byggingartækni. Sem sérfræðingur í byggingartækni færð þú tækifæri til að starfa í fjölbreyttum verkefnum tengdum viðhaldi innan- og utanhúss, svo sem umsjón og eftirliti verklegra framkvæmda, rakaskimunum, ástandsskoðun, gallagreiningu og tillögum að endurbótum, auk verkefnastýringar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastýring
- Gerð útboðs- og samningsskilmála, verklýsinga og kostnaðaráætlana tengdum viðhaldsverkefnum innan- og utanhúss
- Umsjón og eftirlit verklegra framkvæmda
- Rakaskimun og kynning á niðurstöðum og tillögur að endurbótum
- Ástandsskoðanir fasteigna, gallagreining og tillögur að endurbótum
- Byggingaeðlisfræði bygginga
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði eða byggingarfræði
- Iðnmenntun og/eða reynsla af byggingarframkvæmdum er kostur
- Reynsla af áætlanagerð og stjórnun verkefna
- Mikill áhugi á sérhæfingu innan starfssviðs
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samvinnu
- Byggingastjóraréttindi eru kostur
Fríðindi í starfi
- Góður og hollur matur í hádeginu
- Vellíðunarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Hreyfistyrkur
- Fæðingarstyrkur
- Gleraugnastyrkur
- Símastyrkur
- Símaáskrift og heimatenging
Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í innivist
EFLA hf

Fagstjóri rafmagnssviðs
Háskólinn í Reykjavík

Háskólakennari eða lektor á vélasviði
Háskólinn í Reykjavík

Sumarstörf á Vestursvæði: þjónustudeild og tæknideild
Vegagerðin

Project Manager
Tern Systems

Sérfræðingur í hönnun stjórnkerfa
Raftákn

Sumarstörf fyrir háskólanema í jarðvísindum og verkfræði
ÍSOR

Verkefnastjóri framkvæmda
Náttúruverndarstofnun

Sérfræðingur á teiknistofu
Norðurorka hf.

Vörustjóri rekstrarlausna
Advania

Sérfræðingur í vörustýringu (e. Allocation Specialist)
66°North

Sumarstörf á þróunar- og þjónustusviði
Vegagerðin