

Fagstjóri rafmagnssviðs
Háskólinn í Reykjavík leitar að háskólakennara eða lektor til að leiða rafmagnssvið tæknifræðideildar.
Leitað er að sérfræðingi með víðtæka reynslu á rafmagnssviði. Sérhæfing á háspennusviði er kostur. Starfið er full akademísk staða við fagstjórn og kennslu í rafmagnstæknifræði og í rafiðnfræði.
STARFSSVIÐ:
- Fagstjóri ber ábyrgð á þróun náms í rafmagnstæknifræði og rafiðnfræði.
- Kennsla í völdum námskeiðum í rafmagnstæknifræði og rafiðnfræði.
- Hagnýtar rannsóknir og umsjón verkefna sem unnin eru með nemendum og í tengslum við atvinnulíf.
- Þátttaka í þróun og starfi tæknifræðideildar.
- Þátttaka í innra starfi Háskólans í Reykjavík.
HÆFNISKRÖFUR:
Umsækjandi skal:
- hafa sterka fræðilega hæfni og grunnmenntun í tæknifræði, verkfræði eða hagnýtri eðlisfræði;
- hafa reynslu af kennslu og/eða víðtæka reynslu af hagnýtingu tækni úr atvinnulífi;
- vera skipulagður, nákvæmur og samviskusamur;
- vera jákvæður og hafa mikla félagslega færni;
- eiga auðvelt með að tjá sig í máli og riti, bæði á íslensku og ensku;
- búa yfir frumkvæði og eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt;
- brenna fyrir að vinna með nemendum að fræðilegum viðfangsefnum og hagnýtum verkefnum.
Meistaragráða eða doktorsgráða er kostur, sem og reynsla af kennslu á háskólastigi. Staða lektors í boði fyrir umsækjendur með doktorspróf sem vilja vinna að rannsóknum með kennslu.
Fagstjórinn vinnur þétt með kennurum og fagstjórum annarra námsleiða, verkefnastjórum á skrifstofu og tekur virkan þátt innra í starfi deildarinnar. Þá situr fagstjóri í deildarráði tæknifræðideildar.
Boðið er upp á góða aðstöðu, sjálfstæði í vinnubrögðum og sveigjanleika í starfi.
Tæknifræðideild er ein stærsta deild skólans með um 650 nemendur, 13 akademísk stöðugildi og 4 starfsmenn á skrifstofu og á rannsóknarstofum. Deildin heldur utan um nám í iðnfræði (diplóma), tæknifræði (BSc) og byggingafræði (BSc), og sérhæft örnám fyrir atvinnulífið. Um 150 nemendur útskrifast úr tæknifræðideild árlega.
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Fyrir frekari upplýsingar er áhugasömum boðið að hafa samband við Ásgeir Ásgeirsson, forseta tæknifræðideildar ([email protected]), eða mannauðsdeild HR ([email protected]).
Íslenska
Enska










