Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Verkefnastjóri kennslukerfa

Kennsluþróun HR leitar að framsýnum og lausnamiðuðum samstarfsfélaga til að gegna fjölbreyttu og krefjandi hlutverki við stuðning, þróun og þjálfun í notkun á stafrænum kennsluverkfærum með áherslu á kennslukerfið Canvas. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á að efla gæði náms og kennslu í háskólaumhverfi, ásamt því að styðja og þjálfa kennara í notkun á kennslukerfum skólans. Um er að ræða 50% starfshlutfall.

Helstu verkefni

  • Almenn þjónusta við notendur kennslukerfisins Canvas
  • Ráðgjöf og stuðningur við kennara háskólans í Canvas og öðrum kennslukerfum
  • Aðkoma að skipulagi, framkvæmd vinnustofa/ þjálfunar og fræðsluviðburðum þegar kemur að kennslukerfum háskólans
  • Gerð og þróun leiðbeininga og stuðningsefnis fyrir kennara í notkun kennslukerfa háskólans
  • Þátttaka í innleiðingu og þróun nýrra stafrænna kennsluverkfæra
  • Þátttaka í umbótaverkefnum á sviði kennsluþróunar

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Reynsla af notkun Canvas eða annarra kennslukerfa er mikill kostur
  • Mjög góð færni í upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér ný stafræn verkfæri
  • Mjög góð færni í að miðla þekkingu og veita þjálfun á skýran og hvetjandi hátt
  • Frumkvæði í starfi ásamt skipulagshæfni og faglegum vinnubrögðum
  • Teymishugsun, lipurð, mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Reynsla af kennsluráðgjöf, fræðslu eða sambærilegu starfi er kostur
  • Þekking og reynsla af háskólastarfi er kostur
  • Kunnátta í forritun er kostur
  • Þekking eða reynsla af notkun gervigreindar í námi og kennslu er kostur
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti

Umsóknum um starfið þarf að fylgja ferilskrá og kynningabréf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrefna Pálsdóttir ([email protected]), forstöðukona Kennsluþróunar og Mannauðsdeild HR, ([email protected]).

Umsóknarfrestur til og með 01.03.2026. Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnað.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf ekki síðar en í maí.

Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar