
Samherji hf.
Samherji er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki Evrópu, með víðtæka starfsemi víðsvegar um heim. Samherji hefur á að skipa hæfu og framtakssömu starfsfólki og stjórnendum, öflugum skipaflota, miklum aflaheimildum og fullkomnum verksmiðjum í landi.

SÉRFRÆÐINGUR Á FJÁRMÁLASVIÐI
Samherji óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing til að ganga til liðs við fjármálasvið félagsins á Akureyri.
Fjármálasvið Samherja sér um bókhald félagsins og dótturfélaga þess.
Starfsmaðurinn mun leiða og styðja við umbótaverkefni til að auka skilvirkni, sjálfvirknivæðingu og bæta upplýsingaflæði þvert á svið félagsins. Í starfinu felst ferlagreining, hönnun lausna með sjálfvirknivæðingu og nýjustu tækni að leiðarljósi.
Samherji rekur öfluga útgerð, landvinnslu og fiskeldi og er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og verkstýra umbótaverkefnum í samstarfi við fjármálasvið
- Ferlagreiningar og mótun tillagna að sjálfvirknivæðingu ferla
- Hönnun og uppsetning á skýrslum, mælaborðum og lykiltölum í BI-umhverfi
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við fjármálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. upplýsingatækni, verkfræði eða sambærilegu
- Reynsla af ferlagreiningu, innleiðingu umbótaverkefna eða verkefnastjórnun
- Þekking og reynsla af gagnagreiningu og skýrslugerð í BI umhverfi
- Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Hæfni til samskipta og samstarfs
- Lausnamiðuð hugsun
Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Glerárgata 30, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri kennslukerfa
Háskólinn í Reykjavík

Verkefnastjóri / Vélahönnuður
Héðinn

Sérfræðingar í þróunarteymi
Reykjavik Geothermal

Verkefnastjórar (Project Managers)
Reykjavik Geothermal

Tæknilegur vörustjóri
Arion banki

Sérfræðingur í innivist
EFLA hf

Verkefnastjóri í viðhaldsráðgjöf
EFLA hf

Verkefnastjóri í happdrættis- og markaðsdeild
Happdrætti Háskóla Íslands

Verkefnastjóri í Tæknifræðideild
Háskólinn í Reykjavík

Verkefnastjóri
Landsbankinn

Sumarstörf á Vestursvæði: þjónustudeild og tæknideild
Vegagerðin

Project Manager
Tern Systems