Reykjavik Geothermal
Reykjavik Geothermal

Verkefnastjórar (Project Managers)

(English below)

Spennandi tækifæri í ört vaxandi grænu orkufyrirtæki.

Reykjavík Geothermal er eitt metnaðarfyllsta orkufyrirtæki landsins. Frá stofnun þess árið 2008 hefur félagið unnið að þróunar-, fjárfestinga- og ráðgjafaverkefnum á sviði jarðhita í yfir 50 þjóðlöndum í flestum heimsálfum. Í dag er fyrirtækið í örum vexti og er meðal annars að þróa eigin verkefni á Kanaríeyjum og á Mið-Austurlöndum, auk verkefni okkar í Ölfusi sem er eitt stærsta orkuverkefni landsins.

Við leitum að einstaklingum með metnað og frumkvæði til að sinna faglegri verkefnastýringu í verkefnum RG sem snúa að þróun og framkvæmdum tengdum nýtingu jarðhita um allan heim.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Undirbúningur, skipulagning og eftirfylgni með verkefnaáætlunum
  • Þátttaka í þróun og innleiðingu stafrænna lausna fyrir verkefnastýringu sem styðja við eftirfylgni og ákvarðanatöku
  • Regluleg upplýsingagjöf um stöðu verkefna til stjórnenda og annarra hagaðila
  • Umsjón með fjárhagsáætlunum, áhættustýringu, samningum ofl.
  • Samstarf við sérfræðinga, ráðgjafa, verktaka og aðra hagaðila
  • Virk þátttaka í þróun verklags og starfshátta tengdum verkefnastýringu hjá RG

Leitum að einstaklingum sem hafa:

  • Jákvæðni, samskiptahæfni og lausnamiðaða hugsun að leiðarljósi
  • Vinna sjálfstætt, taka frumkvæði og sýna ábyrgð í starfi
  • Ástríðu fyrir orku-, umhverfis- og loftslagmálum
  • Metnað til að taka þátt í uppbyggingu leiðandi græns orkufyrirtækis
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af verkefnastýringu
  • Áhuga á að starfa í alþjóðlegu umhverfi
  • Gott vald á ensku í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta (t.a.m. spænska) eru kostur


Aðalstarfsstöð er í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík, en verkefnin munu að hluta vinnast á starfsstöðvum erlendis. Einnig koma reglulega upp möguleikar á lengri dvölum eða flutningi á aðalstarfsstöð erlendis.

Umsóknarfrestur er til og með 4.mars nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi um færni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Hilmar G. Hjaltason ([email protected]) og Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Project Managers

Exciting opportunities in a rapidly growing green energy company

Reykjavík Geothermal is one of Iceland’s most ambitious energy companies. Since its founding in 2008, the company has worked on development, investment, and advisory projects in geothermal energy across more than 50 countries on most continents.

Today, the company is experiencing rapid growth and is developing its own projects in the Canary Islands, the United States, and the Middle East, in addition to one of the largest energy development projects currently underway in Iceland.

We are seeking ambitious and proactive individuals to provide professional project management for RG’s projects related to the development and implementation of geothermal energy utilization worldwide.

Key Responsibilities:

  • Preparation, planning, and follow-up of project plans
  • Participation in the development and implementation of digital project management solutions to support monitoring, decision-making, and risk management
  • Regular reporting and presentation of project status to management and stakeholders
  • Oversight of budgets, risk management, contracts, etc.
  • Collaboration with specialists, consultants, contractors, and other stakeholders
  • Active participation in developing project management processes and best practices within RG

We are looking for individuals who:

  • Are positive, strong communicators, and solution-oriented
  • Work independently, take initiative, and demonstrate accountability
  • Have an interest in energy, environmental, and climate issues
  • Are motivated to contribute to building a leading green energy company
  • Hold a relevant university degree and/or have experience in project management
  • Are interested in working in an international environment
  • Have strong written and spoken English skills; Spanish or other language skills are an advantage


The primary workplace is at the company’s headquarters in Reykjavík. However, projects will partly be carried out at international locations. Opportunities for extended stays at overseas offices may also arise on a regular basis.

The application deadline is March 4th.

Applications must be accompanied by a CV and a detailed cover letter outlining the applicant’s motivation for applying and demonstrating their qualifications and suitability for the role.

The recruitment process is managed by Hilmar G. Hjaltason ([email protected]) and Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]) at Vinnvinn.

Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar