Reykjavik Geothermal
Reykjavik Geothermal

Sérfræðingur í skipulags- og umhverfismálum

Spennandi tækifæri í ört vaxandi grænu orkufyrirtæki.

Reykjavík Geothermal er eitt metnaðarfyllsta orkufyrirtæki landsins. Frá stofnun þess árið 2008 hefur félagið unnið að þróunar-, fjárfestinga- og ráðgjafaverkefnum á sviði jarðhita í yfir 50 þjóðlöndum í flestum heimsálfum. Í dag er fyrirtækið í örum vexti og er meðal annars að þróa eigin verkefni á Kanaríeyjum og á Mið-Austurlöndum, auk verkefni okkar í Ölfusi sem er eitt stærsta orkuverkefni landsins.

Við leitum að einstaklingi með sterka heildarsýn, frumkvæði og áhuga á grænni orku til að leiða og samræma skipulags-, umhverfis- og leyfismál verkefna hjá Reykjavík Geothermal. Starfið felur í sér yfirsýn og eftirfylgni með skipulags-, umhverfis- og leyfisferlum, sem og samskipti við ráðgjafa og stjórnvöld, í alþjóðlegu og fjölbreyttu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirsýn og utanumhald um skipulagsmál verkefna RG á Íslandi og erlendis
  • Umsjón með leyfismálum verkefna RG, þar á meðal rannsóknarleyfum, borleyfum, framkvæmdaleyfum og nýtingarleyfum
  • Umsjón með umhverfismálum verkefna, m.a. matsskyldufyrirspurnum, rannsóknum vegna umhverfismats og umhverfismati framkvæmda
  • Samskipti og samhæfing við ráðgjafa RG og viðeigandi stjórnvöld á Íslandi og erlendis
  • Eftirfylgni með ferlum, skýrslugjöf og trygging þess að kröfum laga og stjórnvalda sé fullnægt


Leitum að einstaklingum sem hafa:

  • Reynslu í samskiptum við leyfisveitendur/opinbera aðila
  • Jákvæðni, sterka samskiptahæfni og lausnamiðaða hugsun að leiðarljósi
  • Góða greiningarhæfni, geta unnið sjálfstætt og sýna frumkvæði
  • Ástríðu fyrir orku-, umhverfis- og loftslagsmálum
  • Metnaði til að taka þátt í að byggja upp leiðandi grænt orkufyrirtæki
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af skipulags- og umhverfismálum sem og samskipti við leyfisveitendur og opinbera aðila er mikill kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti. Önnur tungumál eru kostur

Aðalstarfsstöð er í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík, en verkefnin munu að hluta vinnast á starfsstöðvum erlendis. Einnig koma reglulega upp möguleikar á lengri dvölum eða flutningi á aðalstarfsstöð erlendis.

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi um færni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Hilmar G. Hjaltason ([email protected]) og Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar