
Gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri
PK Verk óskar eftir að ráða drífandi gæða-, umhverfis- og öryggisstjóra sem leiðir þróun, innleiðingu og eftirfylgni gæða-, umhverfis- og öryggismála. Hlutverkið felur meðal annars í sér að tryggja framúrskarandi gæði framkvæmda og virkt eftirlit í heilsusamlegu vinnuumhverfi og menningu. Gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri mun einnig leiða mannauðstengd verkefni ásamt fræðslu og þjálfun hjá fyrirtækinu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tryggja að farið sé eftir lögum, reglugerðum og stöðlum er varða byggingaframkvæmdir, meðferð og eftirlit með vinnuvélum og tækjum
- Framkvæma og tryggja reglubundið innra eftirlit með byggingaframkvæmdum og þátttaka í innri og ytri úttektum, þ.m.t. árlegum úttektum á stjórnunarkerfi PK Verks.
- Stýra öryggismálum í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk
- Tryggja að rétt sé staðið að gæða- og öryggismálum í undirbúningi verka og á meðan framkvæmdum stendur
- Framkvæmd áhættugreininga og gerð og eftirfylgni með öryggis- og heilbrigðisáætlunum
- Ýmis mannauðstengd verkefni
- Ábyrgð á fræðslu og þjálfun starfsfólks ásamt því að efla öryggis- og gæðamenningu
- Þátttaka í stefnumótun, umbótaverkefnum og uppfærslu verklagsreglna er snúa að gæða- og öryggismálum
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af framkvæmdum og öryggismálum í byggingaframkvæmdum
- Þekking og reynsla af öryggisstjórnun og mannauðsmálum er kostur
- Mikil þekking á byggingarreglugerð og öðrum reglum/stöðlum sem gilda um gæði framkvæmda
- Reynsla af vottuðum stjórnunarkerfum á borð við ISO9001, ISO 14001 eða ISO 45001 er kostur
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og geta til að hafa yfirsýn yfir fjölbreytt verkefni
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Um PK verk:
PK verk ehf. er öflugt verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 2001 en á rætur sínar að rekja til ársins 1973. Fyrirtækið annast ýmis verkefni í mannvirkjagerð, vegagerð, veitukerfum og húsbyggingum fyrir opinbera aðila og einstaklinga. Fjöldi starfsmanna yfir árið er breytilegur eftir verkefnastöðu en er um 30 manns.
Fyrirtækið er staðsett að Drangahrauni 7 í Hafnarfirði sem hýsir skrifstofu, bíla, tækja- og járnsmíðaverkstæði.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]).
Enska
Íslenska



