Þjóðminjasafn Íslands
Þjóðminjasafn Íslands
Þjóðminjasafn Íslands

Skjala- og gæðastjóri hjá Þjóðminjasafni Íslands

Þjóðminjasafn Íslands leitar að öflugum einstaklingi í starf skjala- og gæðastjóra Þjóðminjasafnsins.

Starfið krefst áræðni og haldgóðrar reynslu af skjalastjórnun auk hæfni til að móta framtíðarsýn í skjala-, gæða- og bókasafnsmálum, en Þjóðminjasafnið rekur sérfræðibókasafn á starfsstöðvum sínum. Í starfinu felst að halda utanum innleiðingu nýrra lausna og verklags ásamt handleiðslu samstarfsfólks með skilvirkni að leiðarljósi.

Skjala- og gæðastjóri starfar í náinni samvinnu við stjórnendur og starfsfólk þvert á starfssvið stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf þar sem reynir á öguð vinnubrögð, samskiptahæfni og fagmennsku.

Skjala og gæðastjóri heyrir undir fjármálastjóra og er aðalstarfsstöðin á Suðurgötu en einnig í Vesturvör Kópavogi og á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði.

Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi, þar sem sköpun, fræðsla og varðveisla menningararfsins fléttast saman í hvetjandi og framsæknu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á skjalamálum stofnunarinnar, mótun verklags og þróun skjalastefnu til framtíðar
  • Leiða þróun og umbætur á sviði skala- og gæðamála
  • Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks um skalavistun og bætt verklag
  • Ábyrgð á að farið sé eftir lögum og reglum um skjalavörslu og skylduskil opinberra stofnunar til Þjóðskjalasafns Íslands
  • Umsjón með sérbókasafni Þjóðminjasafnsins (afgreiðsla, skráning, tímaritahald, skipulag safnkosts)
  • Ábyrgð á innleiðingu gæðastefnu og stjórnun verklags
  • Ábyrgð á ritstjórn gæðahandbókar og uppfærslum í samstarfi við starfsfólk og stjórnendur
  • Frumkvæði í þróun og innleiðingu nýjunga á verklagi við stafræna þróun skjala- og gæðamála auk sérbókasafns
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf (BA/BS að lágmarki) sem nýtist í starfi er skilyrði
  • Reynsla í skjalastjórnun innan opinberrar stjórnsýslu og meðferð stjórnsýslumála er kostur
  • Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfum, gæðakerfum og gæðastjórnun
  • Þekking og reynsla af stafrænu umbreytingarferli og þróun í gæða-, skjala- og upplýsingamálum
  • Ríkir skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og færni til að leiða umbætur
  • Góð samskipta-og samstarfshæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
  • Frumkvæði, metnaður og nákvæmni í starfi, áræðni og drifkraftur
  • Færni í íslensku og ensku skilyrði
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur17. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurgata 41, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Bókasafns- og upplýsingafræðingurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umsýsla gæðakerfaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar