Reykjavik Geothermal
Reykjavik Geothermal

Sérfræðingar í þróunarteymi

Spennandi tækifæri í ört vaxandi grænu orkufyrirtæki.

Reykjavík Geothermal er eitt metnaðarfyllsta orkufyrirtæki landsins. Frá stofnun þess árið 2008 hefur félagið unnið að þróunar-, fjárfestinga- og ráðgjafaverkefnum á sviði jarðhita í yfir 50 þjóðlöndum í flestum heimsálfum. Í dag er fyrirtækið í örum vexti og er meðal annars að þróa eigin verkefni á Kanaríeyjum og á Mið-Austurlöndum, auk verkefni okkar í Ölfusi sem er eitt stærsta orkuverkefni landsins.

Við leitum að einstaklingum með háskólamenntun sem hafa áhuga eða þekkingu á grænni orku, ásamt reynslu í gagnagreiningu. Um er að ræða fjölbreytt hlutverk þar sem viðkomandi veitir faglegan stuðning við þróun verkefna á öllum stigum, frá frumgreiningu og hugmyndavinnu til undirbúnings framkvæmda. Viðkomandi þarf að hafa færni í að vinna í teymi og búa yfir lausnamiðaðri hugsun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stuðningur við þróun jarðhitaverkefna á öllum stigum, í samvinnu við verkefnastjóra og sérfræðinga
  • Söfnun, greining og úrvinnsla gagna sem styðja við ákvarðanatöku
  • Samstarf við innri og ytri sérfræðinga, ráðgjafa, samstarfsaðila og/eða stjórnvöld
  • Undirbúningur kynninga og annars efnis fyrir innri og ytri hagaðila
  • Þátttaka í þróun verklags og aðferða sem styðja við skilvirka þróun jarðhitaverkefna á alþjóðavísu


Leitum að einstaklingum sem hafa

  • Jákvæðni, sterka samskiptahæfni og lausnamiðaða hugsun að leiðarljósi
  • Góða greiningarhæfni, geta unnið sjálfstætt og sýna frumkvæði
  • Ástríðu fyrir orku-, umhverfis- og loftslagsmálum
  • Metnaði til að taka þátt í að byggja upp leiðandi grænt orkufyrirtæki
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Gott vald á ensku í ræðu og riti. Önnur tungumál eru kostur

Aðalstarfsstöð er í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík, en verkefnin munu að hluta vinnast á starfsstöðvum erlendis. Einnig koma reglulega upp möguleikar á lengri dvölum eða flutningi á aðalstarfsstöð erlendis.

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi um færni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Hilmar G. Hjaltason ([email protected]) og Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar