Happdrætti Háskóla Íslands
Happdrætti Háskóla Íslands
Happdrætti Háskóla Íslands

Verkefnastjóri í happdrættis- og markaðsdeild

Verkefnastjóri í happdrættis- og markaðsdeild ber ábyrgð á að stýra og framkvæma verkefni á sviði happdrættisvara og markaðsmála. Verkefnastjóri tekur virkan þátt í vöruþróun og markaðsgreiningu og styður þannig við stefnumótun HHÍ og tryggir að vöruframboð og markaðssetning endurspegli þarfir viðskiptavina, samkeppnisumhverfi og þær reglur sem gilda um starfsemina. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og frumkvæðis, auk náins samstarfs við allar deildir HHÍ sem og utanaðkomandi samstarfsaðila. Við leitum að drífandi einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á markaðsmálum og nýtir tækni og gögn til að hámarka árangur og bæta upplifun viðskiptavina.

Verkefnastjóri heyrir undir markaðs- og rekstrarstjóra Happdrætta.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greina árangur happdrættisvara með nýtingu sölutalna og markaðsgagna til að styðja við upplýsta ákvarðanatöku og leggja fram tillögur að umbótum og nýjungum.  
  • Taka virkan þátt í mótun vörustefnu og innleiðingu nýrra vara með áherslu á nútímalega neytendahegðun.
  • Kortleggja og bæta upplifun viðskiptavina á stafrænum miðlum til að auka þátttöku og tryggja framúrskarandi þjónustu.  
  • Taka þátt í mótun skilaboða og staðfærslu happdrættisvara í samstarfi við auglýsingastofu.
  • Tryggja samræmi milli vöruframboðs og markaðssetningar.
  • Taka þátt í innleiðingu nýrra vara og vera tengiliður milli hagsmunaaðila.
  • Halda utan um verkáætlanir, kostnað og framvindu verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði viðskiptafræði, markaðsfræði eða sambærilegu sviði.
  • Þekking og/eða reynsla af vöruþróun, markaðsgreiningu eða sambærilegu sérfræðistarfi er kostur.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Frábær samskiptahæfni, bæði skrifleg og munnleg.
  • Frumkvæði og áhugi á þróun og umbótum.
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta og færni í ensku, bæði í ræðu og riti. 
Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dvergshöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar