
Gallup
Starfsfólk Gallup býr yfir áratuga reynslu og þekkingu á sviði rannsókna sem gerir því kleift að velja þær rannsóknaraðferðir sem best eiga við hverju sinni.
Með eigin vöruþróun og samvinnu við erlend rannsóknarfyrirtæki getum við boðið staðlaðar eða sérhannaðar lausnir fyrir fyrirtæki og hagsmunasamtök af öllum stærðum og gerðum. Allar byggjast þessar lausnir á viðurkenndum rannsóknaraðferðum.
Starfsfólk Gallup leggur metnað sinn í að skilja umhverfi viðskiptavina sinna og veita þeim innsýn í hlutina, sem er grunnurinn að árangursríkum ákvörðunum.
Gallup - Viðskiptastjóri
Gallup leitar að öflugum einstaklingi með brennandi áhuga á markaðsmálum og rannsóknum og ríka þjónustulund, í starf viðskiptastjóra á sviði Markaðsrannsókna Gallup. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í hópi reynslumikilla sérfræðinga. Starfið er tímabundið til eins árs en með möguleika á framhaldi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öflun nýrra viðskiptavina og verkefna
- Þjónusta og samskipti við viðskiptavini Gallup
- Hönnun rannsókna
- Verkefnastjórn
- Kynning og ráðgjöf á grunni niðurstaðna úr könnunum, sem og önnur eftirfylgni
- Virk þátttaka í þróun á vörum og verkferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla/þekking á sviði markaðsmála er kostur
- Reynsla/þekking á sviði rannsókna er kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Metnaður og vönduð vinnubrögð
- Gagnrýnin hugsun, framsýni og frumkvæði
- Eiga auðvelt með að tala fyrir framan hóp
Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Framkoma/FyrirlestarFrumkvæðiGagnagreiningMarkaðsrannsóknirMetnaðurMicrosoft ExcelSjálfstæð vinnubrögðVerkefnastjórnunVinnsla rannsóknargagnaViðskiptasamböndÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri í happdrættis- og markaðsdeild
Happdrætti Háskóla Íslands

Gagnasérfræðingur (Data Engineer / Data Specialist)
Arctic Adventures

Gagnasérfræðingur
Sýn

Verkefnastjóri
Sveitarfélagið Skagafjörður

Viðskiptastjóri
Kælitækni ehf

ICEWEAR Garn óskar eftir starfsfólki í Fullt starf/hlutastarf
ICEWEAR

Sölufulltrúi í Skútuvogi
Slippfélagið ehf

Viðskiptastjóri
Terra Einingar

Verkefnastjóri á markaðssamskiptasviði
Íslandsstofa

Viðskiptastjóri
Vistor

Sérfræðingur í vörustýringu (e. Allocation Specialist)
66°North

Strategy & Transformation Manager
Icelandair