

Verkefnastjóri á markaðssamskiptasviði
Íslandsstofa leitar að drífandi og skipulögðum verkefnastjóra til að ganga til liðs við markaðssamskiptasvið. Starfið felur í sér umsjón, skipulag og samhæfingu á fjölmiðlafyrirspurnum, blaðamannaferðum og viðburðum þvert á ólíka útflutningsgeira Íslandsstofu.
Viðkomandi mun vera hluti af almannatengslateymi markaðssamskiptasviðs og vinnur náið með öðrum teymum innan Íslandsstofu, PR-skrifstofum, hagaðilum og samstarfsaðilum innanlands og erlendis. Starfið krefst skipulags, fagmennsku og samskiptahæfni.
Um er að ræða tímabundna stöðu í 12 mánuði, með möguleika á áframhaldi.
Umsjón með fjölmiðlafyrirspurnum í gegnum HubSpot CRM kerfi.
Veita blaðamönnum upplýsingar, tengla og myndir.
Samhæfa daglegar fyrirspurnir við PR-skrifstofur, hagaðila og birgja.
Umsjón með bókunum á ferðalögum, gistingu, viðburðaraðstöðu, afþreyingu og veitingum.
Viðvera í blaðamannaferðum og á viðburðum eins og við á.
Þátttaka í stefnumótun og samhæfingu aðgerða.
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d fjölmiðlafræði, ferðamálafræði, verkefnastjórnun eða fleiri tengdum greinum.
Reynsla af verkefnastjórnun, viðburðahaldi eða skipulagi sambærilegra verkefna.
Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
Frumkvæði, skipulagshæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt eða í teymi
Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
Íslenska
Enska










