Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður

Verkefnastjóri

Skagafjörður óskar eftir að ráða drífandi einstakling í starf verkefnastjóra. Starfsstöð verður í ráðhúsi á Sauðárkróki. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Markmið og tilgangur með starfi verkefnastjóra er að halda utan um verkefni á sviði ferða- og menningarmála auk viðburðastjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verkefnastjóri er starfsmaður atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar.
  • Undirbúningur og fundarseta nefnda og ráða á sínu starfssviði.
  • Umsjón með verkefnum á sínu starfssviði.
  • Umsjón með skipulagningu og framkvæmd viðburða á vegum sveitarfélagsins og ýmsum menningarviðburðum.
  • Vefumsjón og kynningarmál í samstarfi við deildarstjóra.
  • Umsjón með komum skemmtiferðaskipa, félagsheimilum og fleira.

Þekkingar- og hæfnikröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun og viðburðahaldi.
  • Þekking og reynsla af styrkjaumsóknum.
  • Þekking og reynsla tengdum ferðamála- og menningarstarfi sem og af opinberri stjórnsýslu.
  • Reynsla af vefumsjón.
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, jákvæðni og metnaður í starfi. Skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti. Kunnátta í fleiri tungumálum er kostur.
  • Almenn ökuréttindi.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Maria Neves, deildarstjóri, 455 6000, [email protected].

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Prófskírteini og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem fram kemur af hverju sótt er um starfið og hvernig viðkomandi uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur3. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar