Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður

Tónlistarskóli Skagafjarðar

Tónlistarskóli Skagafjarðar óskar eftir að ráða í 2-3 stöður tónlistarskólakennara í 50%-100% starfshlutfalli. Stöðurnar eru lausar frá 1. ágúst 2026.

Æskilegt er að viðkomandi geti tekið að sér kennslu nemenda á píanó, blásturs- og/eða strengjahljóðfæri. Kostur væri ef viðkomandi geti einnig kennt á harmonikku og séð um undirleik fyrir lengra komna nemendur. Staða fyrir söng/kór og tónfræðikennslu er einnig möguleg. Kennt er eftir Aðalnámskrá tónlistarskólanna.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Tónlistarkennaramenntun eða tónlistarmenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af kennslu er kostur.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Íslenskukunnátta eða vilji til að læra íslensku.
  • Metnaður fyrir kennslu nemenda á öllum aldri og öllum skólastigum.
  • Almenn ökuréttindi.
  • Áhugi og metnaður fyrir samstarfi innan skólans.
  • Hrein sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristín Halla Bergsdóttir, skólastjóri, [email protected], 868-6851.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Prófskírteini og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem fram kemur af hverju sótt er um starfið og hvernig viðkomandi uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur16. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar