
Tímabundin staða verkefnastjóra í úrgangsmálum
Samtök Sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) óskar eftir því að ráða starfsmann í stöðu verkefnastjóra tímabundið til eins árs, til að fara með umsjón verkefna Sorpstöðvar Suðurlands (SOS) með sérstaka áherslu á greiningu tækifæra til samvinnu sveitarfélaga á Suðurlandi í úrgangsmálum. Verkefnastjórinn heyrir undir framkvæmdastjóra SASS og starfar náið með stjórnum SOS og SASS.
Nánar um SASS: www.sass.is
Nánar um SOS: www.sorpstodsudurlands.is
- Greining tækifæra til samvinnu sveitarfélaga á starfssvæði SOS og SASS í úrgangsmálum
- Umsjón með verkefnum tengdum lokun og vöktun urðunarsvæðis
- Umsjón og hagsmunagæsla vegna eignarhluta SOS í fyrirtækjum á sviði úrgangsmála
- Undirbúningur funda, þ.m.t. fundarboðun, ritun og birting fundargerða
- Samskipti og upplýsingagjöf til aðildarsveitarfélaga
- Fulltrúastörf í svæðisráði/samráðsvettvangi um úrgangsmál
- Fræðsla, miðlun og upplýsingagjöf í úrgangsmálum á starfssvæði SOS
- Aðkoma að fjárhagsáætlunargerð
- Almenn verkefni á skrifstofu
- Önnur tilfallandi verkefni tengd úrgangsmálum á vegum SASS og SOS
- Haldbær starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Haldbær þekking og reynsla sem nýtist í starfi
- Góð þekking á stjórnsýslu og umhverfi sveitarfélaga á Suðurlandi
- Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu
- Góð samskiptafærni
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, framsýni og metnaður
- Góð tölvukunnátta
- Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti
Íslenska
Enska



