

Gagnasérfræðingur (Data Engineer / Data Specialist)
Vertu hluti af einu stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins
Arctic Adventures leitar að hæfileikaríkum gagnasérfræðingi sem hefur áhuga á að byggja upp og þróa gagnainnviði. Gögn gegna lykilhlutverki hjá fyrirtækinu og mikil áhersla er lögð á vandaða greiningu, betra aðgengi og markvissa miðlun upplýsinga til að auðvelda gagnadrifnar ákvarðanir.
Framundan eru fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snúast um að bæta stýringu gagna, auka nýtingu þeirra og styrkja innviði gagnakerfa, sem stuðlar að frekari framþróun á sviði gervigreindar og sjálfvirkra lausna.
Við sækjum einstakling sem er tilbúinn að taka ábyrgð á gagnainnviðum fyrirtækisins og fær bæði frelsi og traust til að móta hvernig gögn eru notuð til að drífa vöxt og nýsköpun. Hjá Arctic Adventures ertu ekki aðeins viðhalda kerfum heldur tekur virkan þátt í hönnun og þróun á gagnaumhverfi, með raunveruleg áhrif á framtíð fyrirtækisins.
Þitt framlag og ábyrgð
- Eignarhald á gagnavinnslu: Hönnun og rekstur gagnavinnslu (SQL, dbt) sem umbreytir hráum gögnum í innsýn sem nýtist rekstrinum.
- Hönnun og skölun: Ber ábyrgð á þróun og afköstum gagnavöruhússins (BigQuery), auk þess að tryggja að tæknistakkurinn fylgi vexti og markmiðum fyrirtækisins.
- Stefnumótun mælikvarða: Hönnun og innleiðing á viðmiðunarlagi (semantic layer) fyrir Arctic tryggir að allir hagsmunaaðilar, þar á meðal stjórnendur og gervigreindarkerfi, hafi samræmdan skilning við gagnaflutning og úrvinnslu.
- Sjálfstæði og frumkvæði: Unnið er markvisst með hagsmunaaðilum og stjórnendum til að umbreyta gögnum í hagnýta eiginleika sem skapa virði fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk fyrirtækisins.
- Framtíðartækni: Það gefst tækifæri til að þróa og innleiða mállíkön (LLMs) og sjálfvirka gervigreindarfulltrúa sem geta haft veruleg áhrif á vöktun og greiningu gagna.
Erum við að leita að þér?
- Hefur reynsluna: 2+ ára reynslu í Data eða Analytics Engineering, hefur notað Python og SQL, og þekkir nútíma gagnatækni (BigQuery, dbt, Fivetran).
- Lausnamiðað og frumlegt viðhorf: Þú hefur gaman af að skapa úrræði frá grunni, greinir markaðstækifæri þar sem aðrir sjá aðeins vandamál og metur stöðugt hverjar þarfirnar eru á markaðnum.
- Ber ábyrgð: Sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum og sinnir verkefnum frá upphafi til enda. Bregst við þörfum án utanaðkomandi fyrirmæla með frumkvæði og framkvæmdaáherslu.
- Hefurðu áhuga á gervigreind? Ef þú brennur fyrir því að skilja hvernig LLM-módel og sjálfvirkni geta haft áhrif á heiminn og langar til að koma slíkri tækni í framkvæmd innan raunverulegs rekstrarumhverfis, þá gæti þetta verið fyrir þig.
Umsóknarfrestur og upplýsingar
Umsóknarfrestur er til og með 01.03.26.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Hafsteinsson, [email protected].
Enska
Íslenska










