Advania
Advania
Advania

Markaðsfulltrúi viðburða og innri markaðssetningar

Advania leitar að hugmyndaríkum og drífandi markaðsfulltrúa til að styrkja enn fremur markaðsteymið. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á viðburðum, góðum samskiptum og fjölbreyttum verkefnum sem snúa að því að skapa öfluga upplifun fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini.

Helstu verkefni

  • Þátttaka í ýmsum viðburðum og ráðstefnum Advania.
  • Umsjón með innri markaðssetningu, m.a. þátttaka í efnisgerð, kynningum og miðlun efnis innan fyrirtækisins.
  • Samvinna við teymi og hagsmunaaðila til að tryggja frábæra upplifun og árangursríka framkvæmd.
  • Ýmis skemmtileg, skapandi og tilfallandi markaðsverkefni í nánu samstarfi við markaðsdeildina.

Við leitum að einstaklingi sem...

  • Er hugmyndaríkur, skipulagður og lausnamiðaður.
  • Sýnir frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Hefur mikinn áhuga og reynslu af utanumhaldi viðburða.
  • Hefur áhuga og reynslu af innri markaðssetningu og almennu markaðsstarfi.
  • Er jákvæður liðsfélagi sem þrífst í fjölbreyttu og lifandi umhverfi.

Um markaðsteymi Advania

Í markaðsteymi Advania býr fjölbreytt reynsla, ólíkir styrkleikar og hæfileikar til að klára málin alla leið. Við rekum fjölnota stúdíó, skipuleggjum markaðsherferðir, útbúum auglýsingar og markaðsefni, höldum stóra og smáa viðburði, sinnum greiningu og veitum ráðgjöf, svo eitthvað sé nefnt. Teymið samanstendur af jákvæðum, öflugum og skapandi einstaklingum sem leggja mikinn metnað í skila öllum verkum 100%.

Hvers vegna Advania?

Hjá Advania færðu að taka þátt í lifandi og metnaðarfullum verkefnum, vinna með frábæru fólki og hafa raunveruleg áhrif á hvernig fyrirtækið birtist bæði inn á við og út á við. Við leggjum áherslu á sveigjanleika, öfluga teymismenningu og faglegan vöxt.

Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar