

Tækni- og þjónustustjóri
Vilt þú vera ráðgefandi og leiða framþróun á tækniumhverfi okkar lykil viðskiptavina? Við leitum að liðsfélaga í öflugt teymi tækni- og þjónustustjóra hjá Rekstrarlausnum Advania.
Við leitum að kraftmiklum, úrræðagóðum og metnaðarfullum einstakling með farsæla starfsreynslu í upplýsingatækni. Við bjóðum uppá spennandi og gott vinnumhverfi með fjölbreyttum verkefnum og tækifærum.
Rekstrarlausnir Advania
Innan Rekstrarlausna starfa tæplega 200 einstaklingar við rekstur, þjónustu og ráðgjöf tengt öllu sem viðkemur tölvukerfum fyrirtækja og stofnana. Við bjóðum uppá fjölbreytt úrval lausna tengt netrekstri, afritunartöku, hýsingu og skýjalausnum.
Starfssvið
Í hlutverkinu leiðirðu framþróun tækniumhverfis stærstu viðskiptavina okkar í samstarfi við sérfræðinga og rekstrarteymi innan Advania. Hluti af starfinu er að vera virkur þátttakandi í teymi tæknistjóra og taka þátt í að móta og þróa faglegt stýrihlutverk fyrirtækisins á þessu sviði.
Sem fulltrúi viðskiptavina hjá Advania felst ábyrgðin m.a. í því að veita faglega ráðgjöf, taka ákvarðanir út frá þörfum og markmiðum þeirra og tryggja að þau hafi skýra yfirsýn yfir stöðu og þróun tækniumhverfis síns. Starfið nær einnig yfir regluleg samskipti og samráðsfundi, þátttöku á vinnustofum og stöðuga upplýsingagjöf um tæknilausnir og heilsufar tækniumhverfis viðskiptavina.
Þekking og reynsla
- Lágmark 5 ára reynsla í upplýsingatækni
- Reynsla af verkefnastjórnun, hóp- eða deildarstjórnun er kostur
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulögð vinnubrögð og geta til að vinna sjálfstætt
- Góð íslensku og enskukunnátta í töluðu og í rituðu máli
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af ITIL er kostur
Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur þá hvetjum við þig samt sem áður til þess að sækja um, þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að í þetta eða annað starf.
Íslenska
Enska










