Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið

Tónlistarstjóri Óperunnar

Óperan auglýsir lausa til umsóknar stöðu tónlistarstjóra. Um er að ræða fullt starf sem felur í sér þátttöku í uppbyggingu nýrrar óperustofnunar og í þróun öflugs, faglegs óperustarfs á Íslandi. Tónlistarstjóri ber ábyrgð á helstu tónlistarþáttum starfseminnar í nánu samstarfi við óperustjóra og aðra lykilstarfsmenn og tekur þátt í mótun dagskrár. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og kallar á víðtæka tónlistarlega kunnáttu. Laun eru samkvæmt viðeigandi kjarasamningi. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. apríl 2026

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með tónlistarþætti óperuverkefna og söngþjálfun einsöngvara
  • Stjórnun kórs/hljómsveitar á æfingum/sýningum
  • Þátttaka í áheyrnarprufum og skipulag þeirra
  • Skipulagning og samhæfing tónlistaræfinga
  • Vinna með gestastjórnendum, aðstoða þá eftir þörfum og geta leyst af ef aðstæður krefja
  • Tækifæri til að stjórna ýmsum uppfærslum og verkefnum
  • Getur leyst repetitör af eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í tónlist
  • Reynsla af starfi í óperuhúsi sem repetitör, aðstoðarhljómsveitarstjóri eða annað sambærilegt
  • Góð þekking á söngröddinni og óperubókmenntum, reynsla af samstarfi við söngvara og hæfni til að leiða tónlistarstarf
  • Góð hæfni til skipulags- og áætlanagerðar
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni er mikilvæg
Fríðindi í starfi
  • Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar
Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hverfisgata 19, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar