Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Verkefnastjóri stjórnsýslu og rannsókna

Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf verkefnastjóra stjórnsýslu og rannsókna.

Starfið heyrir undir forstöðumann Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna. Starfsstöðin er við Háskólann á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með miðlun rannsóknaupplýsinga í IRIS rannsóknargátt (Icelandic Research Information System) við Háskólann á Akureyri.

  • Umsjón með og stýrir þróun verkferla á notkun IRIS rannsóknargáttar, ráðgjöf til starfsfólks, leiðir teymisvinnu og samstarf innan háskólans, tekur út tölfræði, skýrslugerð ofl.

  • Reglufylgni fyrir stór og alþjóðlega styrkt rannsóknarverkefni.

  • Styðja við fræðafólk og fjármálateymi við skýrslugerð og eftirfylgni með stærri rannsóknarstyrkjum.

  • Ritari doktorsnámsráðs og starfsmaður dómnefnda.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf sem nýtist í starfi er nauðsynlegt og doktorspróf er kostur.

  • Þekking og áhugi á rannsóknum ásamt reynslu af rannsóknarumhverfi er æskileg.

  • Þekking og reynsla af umsýslu rannsóknarverkefna og verkefnastjórnun er æskileg.

  • Reynsla af alþjóðlegum rannsóknarstyrkjum er kostur.

  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og umhverfi háskóla er kostur.

  • Starfið gerir miklar kröfur til framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðra vinnubragða og skipulagshæfileika, víðtækrar reynslu í tölvunotkun og ábyrgðarkenndar.

  • Góð færni í íslensku og ensku jafnt töluðu sem rituðu máli er nauðsynleg og færni í einu skandinavísku tungumáli er kostur.

Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur23. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurslóð 202123, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Vinnsla rannsóknargagna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar