Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Þjónustustjóri Mercedes-Benz og smart

Bílaumboðið Askja leitar að öflugum og reynslumiklum þjónustjóra fyrir Mercedes-Benz og smart. Um er að ræða krefjandi og spennandi stjórnendastarf þar sem viðkomandi ber ábyrgð á rekstri, þjónustugæðum og mannauði verkstæðis og þjónustu, með skýra áherslu á framúrskarandi upplifun viðskiptavina. Boðið er upp á einstakt tækifæri til að takast á við fjölbreytt og metnaðarfull verkefni og þróa og leiða þjónustu við eitt virtasta bílamerki heims, ásamt því að byggja upp og efla þjónustu við nýtt og spennandi vörumerki.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun þjónustumóttöku
  • Ábyrgð á fjárhags- og starfsáætlunum og eftirfylgni markmiða verkstæðis
  • Þróun og innleiðing þjónustustefnu með áherslu á ánægju viðskiptavina
  • Selja þjónustu á verkstæðum, afla nýrra viðskiptavina
  • Umsjón með mannauði, vinnuferlum, gæðum og öryggismálum
  • Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila
  • Þátttaka í stefnumótun, samkeppnisgreiningu og öðrum tilfallandi verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði bílgreina eða mikil reynsla af sambærilegu starfi
  • Reynsla af stjórnunarstörfum er nauðsynleg
  • Reynsla úr bílageiranum er æskileg
  • Sterk leiðtogafærni og hæfni til að byggja upp öflugt teymi
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskunnátta í ræðu og riti
Af hverju Askja?
  • Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
  • Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Auglýsing birt12. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar