

Söluráðgjafi Kia
Askja leitar að öflugum aðila sem hefur metnað til að ná árangri og hefur gaman af samskiptum við fólk til að sinna starfi söluráðgjafa hjá Kia. Kia var mest seldi bíllinn árið 2025. Við bjóðum einstakt tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi umhverfi.
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.
- Móttaka viðskiptavina, þjónusta og ráðgjöf
- Símsvörun og svörun tölvuskilaboða
- Eftirfylgni viðskiptavina og uppbygging viðskiptasambanda
- Framsetning bíla, verðmerkinga og annars efnis á sýningarsvæði
- Úthringiverkefni
- Tilboðsgerð, eftirfylgni og samningagerð
- Önnur verkefni sem stjórnandi felur starfsmanni
- Reynsla af sölustörfum æskileg
- Skipulögð vinnubrögð og vilji til að ná árangri í starfi
- Jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun
- Rík þjónustulund og mikil samskiptahæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Gild ökuréttindi
- Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
- Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Enska
Íslenska
