Sýn
Sýn
Sýn

Ráðgjafi tæknilausna

Við leitum að kraftmiklum einstakling til að sinna tæknilegri ráðgjöf á fyrirtækjamarkaði. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á tækni og reynslu af sambærilegum störfum.

Ráðgjafi tæknilausna sér m.a um öflun nýrra viðskiptatækifæra og ráðgjöf, þarfagreiningu og hönnun á sviði fjarskipta og upplýsingatæknilausna. Bæði fyrir núverandi og nýja viðskiptavini Sýnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Öflun nýrra viðskiptavina
  • Ráðgjöf, þarfagreining og hönnun á sviði fjarskipta og upplýsingatæknilausna
  • Vinna náið með viðskiptastjórum og sölumönnum á fyrirtækjasviði
  • Undirbúningur og þátttaka á fundum með viðskiptavinum
  • Samvinna við tæknisvið og aðra sérfræðinga við útfærslu og innleiðingu lausna
  • Fylgjast með þróun á sviði fjarskipta og miðla þekkingu innan og utan fyrirtækis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund, frumkvæði og færni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla af sölu
  • Skipulagshæfileikar
  • Geta til að vinna í hóp
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Tækniþenkjandi
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
Fríðindi í starfi

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Spennandi verkefni
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Möguleika á starfsþróun
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar