Intellecta
Intellecta
Intellecta

Vefverslunarstjóri (Web & E-Commerce Manager)

Öflugt fyrirtæki á smásölumarkaði óskar eftir að ráða drífandi og metnaðarfullan vefverslunarstjóra (Web & E-Commerce Manager) til starfa. Viðkomandi gegnir lykilhlutverki í stafrænum rekstri og ber ábyrgð á heimasíðum og vefverslunum fyrirtækisins ásamt því að leiða áframhaldandi þróun vefmála og bæta upplifun viðskiptavina.

Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á vefverslun, stafrænum lausnum og að efla jákvæða upplifun viðskiptavina en auk þess fær viðkomandi tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á áframhaldandi uppbyggingu og árangur.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með daglegum rekstri heimasíðna og vefverslana
  • Viðhald, uppfærslur og áframhaldandi þróun vefja
  • Tryggja samræmda notendaupplifun, útlit og virkni í samræmi við vörumerki
  • Gæðaeftirlit með virkni vefja á öllum tækjum
  • Náið samstarf við markaðs-, sölu-, og innkaupadeild fyrirtækisins
  • Umsjón með vörum, flokkum og efni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og/eða reynsla á sviði vefreksturs, stafrænnar markaðssetningar og upplýsingatækni
  • Reynsla af rekstri vefverslana
  • Djúp þekking og reynsla á WooCommerce og uppbyggingu vefverslana
  • Hæfni til að greina og leysa tæknileg vandamál í samvinnu við verktaka
  • Samskipti við vefhönnuði, forritara og aðra þjónustuaðila
  • Reynsla af ERP-kerfum, helst Dynamics 365 Business Central
  • Sjálfstæði, skipulagshæfni og lausnarmiðuð hugsun
  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslensku- og enskunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2026 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Helga Birna Jónsdóttir ([email protected].

Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.WooCommerce
Starfsgreinar
Starfsmerkingar