Intellecta
Intellecta
Intellecta

Sérfræðingur á fjármálasviði

Þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða drífandi og duglegan sérfræðing á fjármálasviði til starfa. Viðkomandi mun bera ábyrgð á að tryggja rétt og áreiðanlegt bókhald félagsins, sinna uppgjörsvinnu og veita stjórnendum skýra og gagnlega yfirsýn yfir fjárhagsstöðu og rekstur með reglulegri skýrslugerð og greiningum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Bókun reikninga og færslna í Microsoft Dynamics 365 Business Central (BC)
  • Umsjón með viðskiptakröfum og skuldum, VSK skilum og öðrum lögbundnum skilum
  • Eftirfylgni með innheimtu og greiðslum
  • Undirbúningur og þátttaka í mánaðar- og ársuppgjöri
  • Gerð reglulegra rekstraryfirlita
  • Greining á tekjum, kostnaði og frávikum
  • Vinna með gögn í Excel til að styðja ákvarðanatöku
  • Aðstoð við gerð fjárhagsáætlana og eftirfylgni
  • Aðstoð við gerð sjóðsstreymisáætlana
  • Þátttaka í þróun og umbótum á fjármálaferlum
  • Tryggja aukna skilvirkni og samhæfingu í vinnubrögðum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af bókhaldi og uppgjörsvinnu
  • Góð þekking á bókhaldskerfum, reynsla af Microsoft Dynamics 365 BC er kostur
  • Mjög góð færni í Excel og geta til að vinna með og greina gögn
  • Þekking á verkbókhaldi er kostur
  • Þekking á lögum og reglum um bókhald og skattskil
  • Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Sterk talna- og greiningarhæfni
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Uppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar