Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Deildarstjóri innri og ytri þjónustu

Kópavogsbær leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í nýtt starf deildarstjóra innri og ytri þjónustu. Deildin tilheyrir skrifstofu þjónustu sem veitir kerfis- rekstrar- og notendaþjónustu til starfsfólks og íbúa, sér um samskipti við ytri birgja í upplýsingatæknimálum ásamt rekstri mötuneytis, fasteignaumsjón og innkaupum.

Deildarstjóri innri og ytri þjónustu hefur yfirumsjón með mótun og eftirfylgd þjónustuferla á skrifstofu þjónustu og tryggir með því samræmd vinnubrögð, viðbrögð og þjónustugæði til jafnt íbúa sem starfsfólks. Deildarstjóri er þátttakandi í mörkun þjónustustefnu og mótun verkferla þjónustu ásamt þjónustustjóra.

Deildarstjóri sér um fræðslu og eflingu starfsfólks þjónustuversins og setur fram mælanleg markmið hvers og eins, sem og heildarinnar. Deildarstjóri kannar ánægju meðal þjónustunotenda og tryggir að endurbætur séu framkvæmdar í samræmi við útkomu kannana. Deildarstjóri vinnur tölulegar upplýsingar; fjárhagslegar sem og þjónustutengdar og undirbýr til kynningar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Upplýsingamiðlun til íbúa og starfsfólks. Þar á meðal tryggja það að þjónustuframboð bæjarins sé sýnilegt og aðgengilegt öllum. 
  • Reglulegar ánægjumælingar og eftirfylgd með þeim. 
  • Forgangsraða þjálfun og starfsþróun starfsfólks þjónustuvers og UT þjónustu.  
  • Vera leiðandi í þróun þjónustu og innleiðingu tækni sem auðvelda þjónustu. 
  • Samræma, endurskoða og framfylgja þjónustuferlum þvert á skrifstofu þjónustu. 
  • Eftirfylgni með þjónustuumbótum innan skrifstofu þjónustu. 
  • Innleiða og fylgja eftir breytingarferli innan skrifstofu þjónustu. 
  • Setja fram skýr markmið og lykilmælikvarða þjónustu og fylgja þeim eftir. 
  • Mat á fjárhagslegum ávinningi af útboðum.  
  • Greiningar á þjónustuþáttum og rekstri innan skrifstofu þjónustu. 
  • Tryggja jafnvægi milli kostnaðar og gæði þjónustu á skrifstofu þjónustu. 
  • Stýra fjármagni, hámarka nýtingu auðlinda og finna leiðir til að draga úr sóun án þess að skerða gæði. 
  • Önnur verkefni sem stjórnandi felur starfsmanni. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem fjármálum, viðskiptafræði eða sambærilegt. 
  • Góð þekking og reynsla af rekstri og þjónustuumbótum.  
  • Reynsla af endurskoðun upplýsingatækniinnviða skilyrði. 
  • Reynsla af breytingarstjórnun er skilyrði. 
  • Hæfni til að verkstýra teymi og stjórna verkefnum.
  • Stjórnunarreynsla er kostur.  
  • Mjög góð skipulagsfærni og hæfni til að hafa yfirsýn.  
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta áskilin.  
  • Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund. 
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

36 tíma vinnuvika.

Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur6. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar