

Sérfræðingur í smásölu/verslun (Retail Specialist) – Áfangastaðir
Arctic Adventures | Reykjavík & um land allt
Um Arctic Adventures
Arctic Adventures er leiðandi íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki sem hefur frá 1983 boðið upp á vandaðar náttúruupplifanir og rekur nokkra af vinsælustu áfangastöðum landsins.
Starfið
Við leitum að rekstrarsinnuðum sérfræðingi í verslun sem vill taka þát í að efla upplifun gesta og auka tekjur á okkar áfangastöðum víða um landið. Starfið felur í sér að skipuleggja og reka verslanir á áfangastöðum okkar og hótelum ásamt því að auka viðbótartekjur af minjagripum og örðum vörum.
Þú munt vinna með rekstrardeild áfangastaða, rekstrardeild ferða og markaðsteymi við að þróa og auka vöruframboð í samræmi við ferðir okkar, vörumerkin og með áherslu á sjálfbærni.
Helstu verkefni
• Skipuleggja og reka verslanir á áfangastöðum.
• Þróa og stýra vöruframboði á áfangastöðum, hótelum og ferðum.
• Auka viðbótartekjur með betri nýtingu sölutækifæra.
• Fylgjast með sölu, framlegð og endurgjöf gesta.
• Byggja upp samstarf við birgja með áherslu á íslenskar og sjálfbærar vörur.
• Vinna með starfsfólki að framsetningu og kynningu vara.
Hæfniskröfur
• Reynsla af verslunarrekstri, ferðaþjónustu eða sambærilegu sviði.
• Reynsla af rekstrarskýrslum og árangursmælingum.
• Metnaðargjarnt hugarfar.
• Áhersla á gæði og upplifun gesta.
• Hæfni til að starfa í hröðu og síbreytilegu umhverfi.
Við bjóðum
• Fullt starf með raunveruleg áhrif á upplifun gesta.
• Tækifæri til að móta verslun og þjónustu á spennandi áfangastöðum.
• Metnaðarfullan vinnustað, alþjóðlegt teymi og samkeppnishæf kjör.
Staðsetning: Reykjavík, með reglulegri viðveru á áfangastöðum um land allt.
Vörumerki: Arctic Adventures, Adventure Hotels, Fjaðrárgljúfur, Happy Campers, Into the Glacier, Kerið, Óbyggðasetur Íslands, Reykjavík Röst, Snowmobile.is, Special Tours, The Lava Tunnel, Whales of Iceland, og Your Day Tours.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við [email protected]
Enska
Íslenska










