Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Teymisstjóri á heimili fyrir fatlað fólk

Velferðarsvið óskar eftir þroskaþjálfa eða öðrum fagaðila í 100% tímabundið starf teymisstjóra á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi í eitt ár.

Um er að ræða tíu íbúða kjarna sem veitir þjónustu til fólks með ólíkar fatlanir. Starfið felst í persónulegum stuðningi og þátttöku í faglegu starf í samvinnu við forstöðuþroskaþjálfa, deildarstjóra og aðra teymisstjóra

Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.

Um er að ræða fullt starf í vaktarvinnu, þó mest á dagvöktum.
Staðan er laus 1. júní 2026
Umsóknafrestur er til 11. mars 2026

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á faglegu starfi í samvinnu við forstöðumann, deildarstjóra og aðra teymisstjóra
  • Þátttaka í gerð einstaklingsáætlana
  • Veitir stuðning við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
  • Hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa í sínu teymi og tryggir að starfsemin mæti þeim. 
  • Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi til að starfa sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði mennta- eða félagsvísinda sem nýtist í starfinu.
  • Reynsla og þekking á starfi með fötluðu fólki á heimilum þeirra nauðsynleg.
  • Framtakssemi og jákvæðni í starfi.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
  • Starfið getur verið líkamlega og andlega krefjandi
  • Reynsla af því að leiða faglegt starf er æskilegt
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugum bæjarins.

Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur11. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Austurkór 3b, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar