Veitur
Veitur
Veitur

Rafvirki

Ert þú rafvirki sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum sem snúa að viðhaldi og áreiðanleika fyrir grunninnviði samfélagsins?

Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi í öflugt teymi fagfólks Vatnsmiðla hjá Veitum. Deildin ber ábyrgð á daglegum rekstri og viðhaldi dreifikerfa (borholur, geymar, dælustöðvar, hreinsistöðvar, lagnir) sem tryggja örugga og skilvirka þjónustu með áreiðanleika og sjálfbærni að leiðarljósi.
Hjá okkur tekur þú þátt í viðhaldi, rekstri og endurnýjun búnaðar í hitaveitu, fráveitu og kerfum fyrir kalt vatn á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnin eru fjölbreytt og þú vinnur náið með öflugu teymi fagfólks.

Það væri frábært fyrir þetta hlutverk ef þú hefur:
  • Sveinspróf í rafvirkjun
  • Kostur ef þú hefur einnig vélfræði menntun
  • Reynslu af vinnu við vélbúnað, iðntölvur og stýringar
  • Ríka öryggisvitund
  • Drifkraft og getu til að hugsa í lausnum
  • Lipurð í samskiptum og jákvætt viðmót
  • Frumkvæði og umbótahugsun
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og góða aðlögunarhæfni
Hvers vegna Veitur?

Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tengir samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónusta ríflega 70% landsmanna. 
Við leggjum áherslu á fagmennsku, frumkvæði og framsýni í allri okkar starfsemi og leitum einstaklinga sem vilja hafa raunveruleg áhrif á framtíð grunninnviða samfélagsins.

Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja www.veitur.is/vinnustadurinn
Við erum forystuafl fjölbreytileika og jafnréttis. Rannsóknir hafa sýnt að fjölbreytileiki leiðir til betri árangurs og því hvetjum við öll sem uppfylla grundvallarskilyrði starfsins til að sækja um.

Aðrar upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Björn Pálssson Leiðtogi viðhalds og reksturs Vatnsmiðla, [email protected]

Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur6. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Rafvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar