Fagkaup ehf
Fagkaup ehf
Fagkaup ehf

Almenn umsókn hjá Fagkaupum

Sumarstarf/ framtíðarstarf

Innan Fagkaupa eru starfandi öflug fyrirtæki og því leitar Fagkaup reglulega að öflugum liðsfélögum. Fagkaup rekur verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindra, Vatn & veitur, S.Guðjónsson, Ísleif, Áltak, K.H. Vinnuföt, Varma og vélaverk, Ísleif, Hagblikk og Fossberg. Hjá Fagkaupum starfa rúmlega 300 einstaklingar í Reykjavík, Kópavogi, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Grundartanga, Selfossi og á Akureyri.

Ef þú hefur t.d. lokið iðnmenntun í rafvirkjun, pípulögnum eða sambærilegu er gott ráð að sækja um. Afgreiðslustörf í verslunum Fagkaupa eða störf í vöruhúsum eru meðal starfa sem hægt er að sækja um.

Störf á stoðsviði Fagkaupa, í þjónustudeild eða í akstursdeild eru einnig reglulega í boði.

Höfuðstöðvar félagsins eru að Klettagörðum 25, Reykjavík en starfseiningar eru víða t.d. á Akureyri, á Selfossi, Grundartanga, Reyðarfirði, Reykjanesbæ, Hafnafirði og Kópavogi

Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Fagkaup hvetur áhugasama að sækja um óháð aldri, kyni og uppruna.

Farið er með starfsumsóknir sem trúnaðarmál.

Helstu verkefni og ábyrgð

    Fjölbreytt störf kalla á ólík verkefni og ábyrgð. 

    Þar sem um almenna umsókn er ræða er mikilvægt að láta fylgja með umsókninni bæði ferilskrá og kynningarbréf. Í kynningarbréfi er mikilvægt að taka fram í hvaða einingu verið er að sækja um, hver er helsta reynsla, hæfni og í tilfellum menntunarstig.

    Í ferilskrá er mikilvægt er að rekja fyrri störf, reynslu og fleira. Einnig er að gott að hafa meðmælendur. 

    Menntunar- og hæfniskröfur

    Almenn umsókn

    Menntunar og hæfniskröfur fara eftir eðli starfanna. Sérfræðistörf kalla á aukna menntun eins og iðnmenntun í rafvirkjun eða pípulögnum. Það er þó ekki alltaf skilyrði því reynsla getur líka verið mikill kostur. Einnig eru auknar menntunarkröfur fyrir sérfræðistörf á skrifstofu.

    Í þjónustudeildum er mikill kostur að hafa vinnuvélaréttindi en þó ekki skilyrði. Sæktu um og sjáðu hvort þú passir í hópinn okkar!

    Almennar hæfniskröfur eru þessar: 

    • Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
    • Frumkvæði, metnaður og heiðarleiki.
    • Hæfni til að vinna undir álagi og sinna mörgum verkefnum í einu.
    • Góð íslensku- og enskukunnátta.
    • Menntun sem nýtist í starfi. 
    • í störfum í þjónustudeildum/ vöruhúsum Fagkaupa er bílpróf skilyrði og kostur að hafa vinnuvélaréttindi. 
    • Reglusemi og snyrtimennska.
    Fríðindi í starfi
    • Líkamsræktarstyrkur 
    • Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta 
    • Niðurgreiddur hádegismatur 
    • Öflugt starfsmannafélag

    Að auki bjóðum við: 

    • Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
    • Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
    • Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu 
    • Afsláttarkjör af vörum félagsins 
    • Sveigjanlegt starfsumhverfi 
    • Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi 
    Auglýsing birt2. mars 2026
    Umsóknarfrestur13. apríl 2026
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Nauðsyn
    Framúrskarandi
    EnskaEnska
    Nauðsyn
    Mjög góð
    Staðsetning
    Smiðjuvegur 11, 200 Kópavogur
    Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
    Starfstegund
    Hæfni
    PathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vandvirkni
    Vinnuumhverfi
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar