Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri

Aðalbókari á skrifstofu fjármála við Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri auglýsir starf aðalbókara á skrifstofu fjármála. Um er að ræða 100% stöðu og er staðan laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Næsti yfirmaður er Rannveig Jóhannsdóttir fjármálastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með öllu bókhaldi, eignakerfi, afstemmingum og annarri bókhaldsvinnu 
  • Umsjón og yfirferð bókhalds og ábyrgð á frágangi bókhalds 
  • Umsjón og eftirlit með afstemmingum ásamt annarri úrvinnslu úr fjárhagsbókhaldi 
  • Ábyrgð á  skipulagi bókhalds og að verkferlar séu í samræmi við lög og viðurkenndar reikningsskilareglur
  • Uppgjör og frágangur bókhalds i samvinnu við fjármálastjóra 
  • Þátttaka í áætlunargerð og innra eftirliti 
  • Skráning og utanumhald á eignakerfi 
  • Flutningi gagna í fjárhagskerfi úr öðrum kerfum 
  • Umsjón með ferðauppgjörskerfi 
  • Ráðgjöf og stuðningur við notendur fjárhagskerfis 

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi t.d.  viðurkennt bókaranám eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi 
  • Þekking og reynsla af færslu bókhalds hjá ríki eða sveitarfélagi er kostur
  • Þekking og reynsla af endurskoðun er kostur
  • Þekking á bókhaldskerfum Orra og/eða Navision er kostur
  • Góð þekking á Office 365 og PowerBI er kostur 
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Góð þekking og reynsla við hagnýtingu EXCEL
  • Faglegur metnaður í starfi, lausnamiðað og árangursmiðað viðhorf
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og markviss vinnubrögð
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og miðlun upplýsinga
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

 

Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur6. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Eyrarlandsvegur, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.UppgjörPathCreated with Sketch.Viðurkenndur bókari
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar