Olíudreifing þjónusta
Olíudreifing þjónusta
Olíudreifing þjónusta

Sumarafleysingar á skrifstofu Olíudreifingar

Olíudreifing leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingum í sumarafleysingar á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjavík. Um er að ræða hlutastarf og fullt starf fram í ágúst 2026.

Við sækjumst eftir fólki sem hefur metnað til að læra og vinna í öflugu teymi sérfræðinga okkar.

Um starfið
Um er að ræða fjölbreytt verkefni á skrifstofu Olíudreifingar, sem dæmi:

  • Afgreiðslubókhald
  • Gjaldkerastörf
  • Skráning reikninga
  • Innkaup fyrir skrifstofu
  • Önnur verkefni sem koma að rekstri skrifstofu

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni
  • Vandvirkni og lausnamiðuð hugsun
  • Reynsla af almennri skrifstofuvinnu er kostur
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð kunnátta í íslensku er skilyrði

Við bjóðum þér:

  • Spennandi verkefni og tækifæri til að læra
  • Niðurgreiddan hádegismat
  • Öflugt starfsmannafélag

Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Harpa Hrund Jóhannsdóttir ([email protected]).
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Um Olíudreifingu:

Olíudreifing er þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði orkumála. Hlutverk Olíudreifingar er að dreifa og halda utan um birgðir á fljótandi orkugjöfum. Félagið er nú þegar þátttakandi í orkuskiptum og er að undirbúa meðhöndlun rafeldsneytis.

Fyrirtækið rekur bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Einnig er rekið þjónustuverkstæði sem sinnir viðhaldi á raf- og vélbúnaði. Starfsfólk félagsins er um 130 talsins og starfar á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Unnið er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum.

Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má finna á www.odr.is.

Auglýsing birt23. febrúar 2026
Umsóknarfrestur12. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hólmaslóð 8, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar