TVG-Zimsen
TVG-Zimsen

Spennandi sumarstörf hjá Gáru

Gára leitar að jákvæðu og drífandi starfsfólki í fjölbreytt sumarstörf hjá félaginu þar sem engir tveir dagar eru eins.

Gára sér um umboðsmennsku fyrir erlend skip sem koma til landsins, þar sem stærsti hluti þeirra eru skemmtiferðaskip. Starfsfólk Gáru sinnir fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem tryggja faglega og skjóta þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu hlutverk eru eftirfarandi:

  • Störf sem umboðsmaður skipa og viðskiptavina, með áherslu á dagleg samskipti, samhæfingu verkefna í höfn, upplýsingagjöf og lausn mála sem upp koma fyrir hönd viðskiptavina.
  • Störf við skipulagningu og framkvæmd áhafnaskipta, þar á meðal samskipti við skipafélög, áhafnir og samstarfsaðila til að tryggja hnökralausa og örugga framkvæmd.
  • Umsjón með sendingum, móttöku og afhendingu vara, auk eftirfylgni með flutningum til að tryggja að allt berist á réttum tíma og á réttan stað.
  • Innkaup og afhending á vörum og birgðum samkvæmt þörfum viðskiptavina. Verðkannanir og samskipti við birgja. 
  • Grunnbókhald, skráning gagna, útgáfa og móttaka reikninga ásamt almennu utanumhaldi fjármálatengdra verkefna.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla/menntun sem nýtist í starfi kostur
  • Góð enskukunnátta er skilyrði og íslenskukunnátta er kostur. 
  • Góð almenn tölvufærni
  • Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og áreiðanleiki
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Færni til að starfa í hóp í alþjóðlegu umhverfi

Hefur þú áhuga á að slást í hópinn og eiga skemmtilegt sumar með Gáru? Þá hvetjum við þig til að sækja um!

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt23. febrúar 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar