

Skrifstofustjóri - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbær
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar að drífandi einstakling í starf skrifstofustjóra. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður með frábæra skipulags- og samskiptahæfni.
Skrifstofustjóri er lykilaðili í stuðningi við forstöðumann á sviði rekstrar-, mannauðs- og gæðamála. Starfið felur í sér bæði skipulagningu, eftirfylgni og virka þátttöku í daglegum rekstri stöðvarinnar. Á heilsugæslunni Seltjarnarnesi og Vesturbæ er góð samvinna fagstétta og frábær starfsandi. Stöðin leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýtt starfsfólk.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf 1. apríl eða eftir nánara samkomulagi. Frekari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
- Stýrir daglegum rekstri skrifstofu og afgreiðslu, m.a. móttöku og símasvörun
- Skipuleggur vinnufyrirkomulag, vaktir og frí heilsugæslu- og móttökuritara
- Er forstöðumanni til aðstoðar í rekstri, mannauðs- og gæðamálum
- Hefur yfirsýn yfir aðgengi, móttöku og flæði skjólstæðinga
- Annast vinnuskipulag, yfirferð vinnustunda og þátttöku í ráðningum
- Mótun, samræming og eftirfylgni verklagsreglna
- Umsjón með innkaupum, birgðum, skjalavörslu og rafrænum sendingum
- Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu og tekur þátt í umbótastarfi
- Sinnir kerfisumsjón á starfsstöð og vinnuaðstöðu starfsfólks
- Vinnur eftir þörfum einnig í afgreiðslu
- Sinnir öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur viðkomandi
- Háskólamenntun (B.A. eða B.S.) sem nýtist í starfi
- Reynsla af rekstri, mannauðsmálum og/eða stjórnun æskileg
- Þekking og áhugi á gæðamálum og umbótastarfi
- Mjög góð skipulagshæfni og færni í forgangsröðun
- Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna undir álagi
- Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila
- Góð tölvukunnátta og kerfislæsi
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og ágæt enskukunnátta
Íslenska
Enska
























