

Meðferðaraðili - Heilaörvunarmiðstöð HH
Viltu vera hluti af næstu byltingu í geðheilbrigðisþjónustu?
Heilaörvunarmiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins leitar að drífandi og áhugasömum sjúkraliða sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í spennandi meðferð og þróun þjónustunnar. Heilaörvunarmiðstöðin er nýleg og ört vaxandi þjónustueining HH þar sem notast er við TMS-heilaörvun, öfluga, sársaukalausa og lyfjalausa meðferð sem hefur breytt lífi fjölda skjólstæðinga með alvarlegt þunglyndi.
Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. maí eða eftir nánara samkomulagi.
Ef þú hefur áhuga á geðheilbrigði og nýsköpun og vilt starfa í teymi sem brennur fyrir framúrskarandi þjónustu, þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
- Móttaka og dagleg þjónusta við skjólstæðinga
- Framkvæmd TMS-meðferða samkvæmt verklýsingum
- Upplýsingagjöf og fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda
- Þátttaka í þróunarverkefnum og gæðastarfi
- Skráning upplýsinga í Sögu og önnur kerfi eftir atvikum
- Umsjón með tímabókunum og skipulagi meðferðar
- Samvinna við aðra fagaðila innan sem og utan stofnunar
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast starfseminni
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Viðbótarnám í geðhjúkrun æskilegt
- Æskilegt er að viðkomandi hafi a.m.k. 5 ára starfsreynslu sem sjúkraliði
- Reynsla af starfi innan geðheilbrigðisþjónustu skilyrði
- Þekking á sjúkraskrárkerfi Sögu æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð skipulagashæfni, nákvæm og öguð vinnubrög
- Reynsla og hæfni til að starfa í þverfaglegri teymisvinnu
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Jákvætt, sveiganlegt og lausnamiðað viðhorf
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Íslenska
Enska






















