Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot - stuðningur við barn

Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í hlutastarf á frístundaheimilið Álfakot í 40% í stuðning með barni

Í Engidalsskóla er starfrækt frístundaheimili fyrir 6 - 9 ára börn. Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.

Starfið felur í sér stuðning við barn í frístundastarfi skólans. Vinnutími er á bilinu 13:00-16:00.

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, nemendur eru um 200. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfa á frístundaheimili fyrir yngri nemendur
  • Stuðningur við barn
  • Starfa með fjölbreyttum nemendahópi
  • Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
  • Fylgjast með og aðstoða börn í leik og starfi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu skóla- og frístundaliða og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Arnheidur Gudmundsdóttir deildarstjóri frístundastarfs í netfangið [email protected] eða í síma 555-4434.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2026.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar