

Sumarstarf sem skiptir máli! Vertu hluti af öflugu og samheldnu teymi í Stjörnugróf 11
Í Stjörnugróf 11 búa sex einstaklingar með flóknar samsettar greiningar. Við vinnum eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og compassionate care, þar sem mannleg virðing, stöðugleiki og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Við leitum að ábyrgum, hlýjum og áhugasömum einstaklingum í sumarstarf.
Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í nýlegum búsetukjarna.
Boðið er upp á sumarstarf í vaktavinnu (dag-, stubba-, milli-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir). Æskilegt er að umsækjendur geti tekið fjölbreyttar vaktir yfir sumarið. Starfshlutfall samkomulagsatriði.
Af hverju Stjörnugróf 11?
Í Stjörnugróf 11 starfar öflugur og samheldinn hópur fólks sem leggur ríka áherslu á fagmennsku, stöðugleika og jákvæð samskipti.
Hér gefst tækifæri til að öðlast dýrmæta reynslu á sviði velferðar- og stuðningsþjónustu og efla samskiptahæfni, sjálfsþekkingu og faglegan þroska í krefjandi og gefandi umhverfi.
Starfið felur meðal annars í sér:
- Að styðja íbúa til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og hvatningu
- Að veita stuðning við ólíkar birtingarmyndir hegðunar af ró, skilningi og stöðugleika
- Að aðstoða við athafnir daglegs lífs, heimilishald og virkni
- Að styðja við samfélagsþátttöku og jákvæð samskipti
- Að vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa
- Aldur 20 ára eða eldri er skilyrði
- Góð almenn menntun
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Afburðahæfni í mannlegum samskiptum
- Stöðugleiki og geta til að halda ró undir álagi
- Framtakssemi, dugnaður og vilji til að læra
- Góð íslenskukunnátta (að lágmarki B1)
- Hreint sakavottorð samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar
Laun og kjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Íslenska
Enska






























