

Sérkennari/þroskaþjálfi - Leikskólinn Hlíðarendi
Leikskólinn Hlíðarendi óskar eftir að ráða sérkennara/þroskaþjálfa í fullt starf
Leikskólinn Hlíðarendi er fjögurra deilda og er staðsettur í útjaðri Setbergshverfis. Helstu áhersluþættir eru hreyfing, lífsleikni og umhverfismennt. Í Hlíðarenda er unnið að því skapa lærdómsríkt, örvandi og ánægjulegt umhverfi þar sem börnin fá tækifæri til að þroskast á eigin forsendum. Leiðarljós leikskólans endurspeglast í einkunnarorðunum virðing – virkni – vinátta, sem móta allt starf og samskipti innan leikskólans.
Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að uppeldi og menntun barns/barna með sérþarfir þar með talið að skipuleggja sérkennslu viðkomandi í samvinnu við sérkennslustjóra og deildastjóra.
- Gerir skriflegar einstaklingsnámskrár fyrir það barn/börn sem hann er með í stuðning
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn þess barns/barna sem hann er með í stuðning
- Er leiðbeinandi fyrir annað starfsfólk varðandi stuðning við nemendur með sérþarfir
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn) eða háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Reynsla af teymisvinnu æskileg
- Færni í samskiptum og samstarfshæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Fáist ekki sérkennari/þroskaþjálfi til starfsins, kemur til greina að ráða einstakling með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Upplýsingar um starfið veita Bryndís Guðlaugsdóttir leikskólastjóri og Halldóra Eiríksdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555 1440. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2026.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ eða Þroskaþjálfafélag Íslands.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska

























